Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 21.04.2011, Qupperneq 46
46 matur og vín Helgin 21.-24. apríl 2011 Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson matur@frettatiminn.is M artini er einn þekkt- asti kokteill verald- arsögunnar. Margir mætir menn hafa haft dálæti á drykkn- um en þekktastur er auðvitað James Bond. Hann drekkur vodka martini, hristan, ekki hrærðan sem á fagmáli kallast að fá sér einn Bradford. En hvort er betra, hristur eða hrærður? Hristur verður kaldari og inniheldur meira af klakabrotum, sem auðvitað mildar bragðið. Hrærður er þá vænt- anl ega fyrir lengra komna hvað svo sem það segir um herra Bond. Annars er innihald Martini einfalt; gin og vermút. Það má líka nota vodka sem er bragðminna en ginið er klass- ískara. Til að einfalda málið enn frekar má segja að drykkurinn sé ísjökulkalt gin með pínu skvettu af þurrum vermút. Vermút (Martini) er styrkt og krydd- að hvítvín, yfirleitt í kringum 15% að styrkleika. Nóg er að setja örfáa dropa í glasið til að gefa bragðið og passa verð- ur að setja ekki of mikið annars getur vermútinn yfirgnæft drykkinn. Ein aðferð er að væta glasið allt að innan með vermút og hella því svo aftur úr áður en fyllt er upp með klakahristu gini. Önnur aðferð er að setja slatta af vermút í hristara ásamt klaka, hrista vel, hella svo vermútinum úr og hella því næst gininu yfir klakann sem eftir situr og hrista aftur. Þriðja aðferðin er svo að hrista vermút, gin og klaka saman í hristara og sía svo vökvann í glasið. Sumir gera eins og Winston Churchill sem hrærði gininu í klaka, hellti því svo í kælt glas skreytt með ólívu og lét sér svo nægja að líta ör- snöggt á vermútflösku í fjærhorni herbergisins. Miklu málir skiptir að nota klaka beint úr frystinum og helst geyma glasið í frysti áður en hellt er í það til þess að það sé ísjökul- kalt þegar drykknum er hellt í.  Fréttatíminn blandar Martini-kokteila Hristur en ekki hrærður Ian Flemm- ing fékk Bond sjálfan til að kynna drykkinn í fyrstu Bond- bókinni, Casino Royal. Bond, sem pantar eingöngu einn drykk fyrir matinn, vildi hafa hann vel útilátinn. Óhætt er að fullyrða að Vesper nái að snerta flest hraustmennin. 3 hlutar gin 1 hluti vodka ½ hluti Kina Lillet eða annar bitter drykkur Allt hrist vel í klaka, hellt í stórt kokteilglas og skreytt með sítrónuberki. Hristur martini með ólívu Þetta er sá allra klassískasti og inniheld- ur ólívu sem ber með sér olíu og salt og hefur strax áhrif á bragð drykkjarins. Ef þú hristir smá ólívuvökva út í klakann með gininu kallast það „dirty martini“. 2 cl gin nokkrir dropar af þurrum vermút Hrist saman í klaka. Hellt í ískalt kokteilglas. Skreytt með ólívu eða ólívum sem er haldið saman með kokteilpinna. Það er einnig hægt að skreyta drykkinn með perlulauk en þá kallast hann Gibson. Þessi er líka klass- ískur og inniheld- ur snúinn sítrónubörk (lemon twist) sem er kreistur yfir glasinu áður en hann er lagður ofan í. Það er ótrúlegt hvað smá sítrónubörkur getur haft mikil áhrif. 2 cl gin eða vodka, Þekjið glasið að innan með vermút og hellið umfram vökva. Hrærið ginið með hræripinna í miklum klaka í háu íláti Síið vökvann frá klökunum ofan í ískalt kokteilglas. Kreistið þunna sneið af sítrónu- berki fyrir ofan glasið og leggið svo börkinn ofan í. Hrærður martini með sítrónuberki Vesper martini að hætti Bond Lj ós m yn d/ N or di c Ph ot os /G et ty Im ag es
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.