Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 21.04.2011, Blaðsíða 58
58 dægurmál Helgin 21.-24. apríl 2011  Plötuhorn Dr. Gunna the Drift  Daníel Ágúst Á annarri sólóplötu sinni er Daníel Ágúst kominn í mexíkóska axlarskjólið úr Alelda myndbandinu með Nýdönsk, en jöklabít GusGus eru víðsfjarri. Hann er staddur í eyðimörk og brennandi sólin ærist yfir höfði hans. Hann syngur ekki af miklum krafti, enda lítið vatn eftir í brúsanum og hann þarf að hreyfa sig af yfirvegun. Tónlistin sem hann og traustur hópur samstarfs- manna ber á borð er verulega heit og löðrandi, sandorpið hillingarokk sem leggur áherslu á dáleiðandi grúf og dáleiðandi melódíur, sem læðast aftan að hlustandanum eins og skröltormar. Stundum er svo gefið aðeins í eins og til að auka á fjölbreyti- leikann. Þessa plötu er best að hlusta á með sólgleraugu. Both Ways  Ástþór Óðinn Íslenska rappið átti gott ár í fyrra með endurkomuplötu BlazRoca og fyrstu plötu Friðriks Dórs, sem er á næsta bæ með sitt nútímalega err og bé. Frá Njarðvík er Ástþór Óðinn og leggur sitt á vogarskálar hipp- hoppsins á þessari fjórðu útgáfu sinni. Hér rappar hann mest á ensku, sem hefur hingað til ekki skilað miklum árangri á Íslandi, en hann hefur líklega alþjóðamarkaði í huga. Tónlist Ástþórs er poppað hipphopp og lögin tólf eru misgóð. Oft tekst honum vel upp í kraftmiklum og töff lögum, en annað er kraftminna og slappara, sumt hálf- gerð þunnildi. Þetta er ekki alveg fyrsta deild, en Ástþór stefnir þangað ótrauður. the Wasting light  Foo Fighters Þetta er sjöunda plata Daves Grohl og félaga og sú fyrsta síðan 2007. Foo Fighters er með vinsælli rokkböndum heimsins í dag og hefur spilað tvisvar á Íslandi, 2003 og 2005. Rokkið er eins og gert fyrir fólks- stöppur á risaleik- vöngum: Allir syngja með og baða út öng- unum þegar rosa- viðlögin skella á og springa út í takt við flugeldasýninguna uppi á sviði. Þessa plötu vantar fyrst og fremst betri lög, sterkari melódíur og eftirminnilegheit. Þetta er satt að segja alltof mikil framleiðsla, óspenn- andi hjakk á klisjum, plata rúin orku þeirra sem þurfa að hafa fyrir hlutunum. Sándið er frekjulega kraftmikið og dauð- hreinsað, en æstustu aðdáendurnir munu væntanlega ekki setja það fyrir sig. Patti Húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími um páska : Skírdagur 21.apr. - Lokað Föstud.langi 22.apr. - Lokað Laugard. 23. apr. - Opið frá 11 til 16 Sunnud. 24.apr. - Lokað Annar í Páskum 25.apr. - Lokað Íslensk framleiðsla Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir) Þú velur og drauma sófinn þinn er klár Vaxtalausar raðgreiðslur í allt að 12 mánuði Bíópar tekur við Skjaldborg S kjaldborg, hátíð íslenskr-ar heimildarmyndagerð- ar, verður haldin í fimmta sinn á Patreksfirði yfir hvítasunnuhelgina, dagana 10.-12. júní. Hjónin Janus Bragi Jakobsson og Tinna Ottesen eru nýir stjórnend- ur Skjaldborgar og þau eru sannkallað bíópar. Janus er útskrifaður úr sjónvarps- og heimildar- mynda-prógrammi Danska kvikmyndaskólans og Tinna lauk hönnunarnámi frá Dan- marks Designskole með við- komu í Danska kvikmynda- skólanum. Þau hafa unnið saman að gerð ýmissa kvik- myndaverkefna. Jakob hefur sérhæft sig í leikstjórn heim- ildarmynda og framleiðslu en Tinna í leikmyndagerð. „Við höfum þrisvar sýnt á Skjaldborg en aldrei náð því að vera viðstödd,“ segir Jan- us. Á því verður nú heldur betur breyting og Janus er nýkominn frá Patreksfirði þar sem hann kynnti sér að- stæður, skoðaði kvikmynda- húsið og ræddi við bæjar- stjórann, en bærinn hefur jafnan stutt vel við bakið á hátíðinni. „Við höfum heyrt svo mikið af góðum sögum frá hátíðinni og ég fékk strax mjög góða tilfinningu fyrir bænum og bíóinu.“ Janus segir gróskuna í heimildarmyndagerð á Ís- landi slíka að hátíðin nái engan veginn að sinna öllu því framboði sem er á slíkum myndum. „Með Skjaldborg hefur samt tekist að búa til vettvang þar sem fólk getur fengið að sýna hluti sem það fengi ekki sýnda annars staðar.“ Viss hefð hefur skapast fyrir því að kvikmynda- gerðarfólk reyni að miða við Skjaldborg til að setja sér einhvers konar tímamörk til þess að ljúka við verk sín, í þeim tilgangi að fá myndina frumsýnda þar. Þeir sem eru í þessum stellingum ættu að hafa hugfast að umsóknar- frestur fyrir þá sem vilja koma myndum að á Skjald- borg er til 10. maí.  SkjalDBorG íSlenSkar heimilDarkvikmynDir Janus og Tinna eru nýkomin til landsins eftir áralanga dvöl í Dan- mörku og munu liggja yfir heim- ildarmyndum næstu vikurnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.