Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.04.2011, Side 59

Fréttatíminn - 21.04.2011, Side 59
20 GB erlent gagnamagn Verð 2.495 kr. 50 GB erlent gagnamagn Verð 3.495 kr. 150 GB Erlent gagnamagn Verð 4.495 kr. Yfir 70 stöðvar og leigu- viðmót þar sem þú getur horft á þitt sjónvarpsefni þegar þér hentar. 0 kr. í alla heimasíma 14,9 kr. í alla farsíma Engin upphafsgjöld 2,9 kr. í 48 lönd Verð 495 kr. * Heimili greiða 2.410 kr. á mánuði fyrir aðgang að Ljósleiðaranum til Gagnaveitu Reykjavíkur Þjónustuver Hringdu er opið alla páskana í síma 537 7000 frá kl. 10-18 á aðeins 2.495 kr. 100 Mb/s ljósleiðari Heimasími yfir ljósleiðarann HD Háskerpu sjónvarp yfir ljósleiðarann www.hringdu.is 0 kr. í 48 lönd í heimasíma 0 kr. í 10 lönd í farsíma * dægurmál 59Helgin 21.-24. apríl 2011  þjóðmenningarhúsið Opið alla páskana Sýning á skjölum Jóns forseta  myndlist kjarvalsstaðir Þjóðskjalasafn Íslands varðveit ir f jölbreytt safn skjala sem tengjast lífi og starfi Jóns Sig- urðssonar. Sýnishorn af þessum skjölum má nú sjá prentuð á sýning- arspjöld í Bókasal Þjóð- menningarhússins við Hverfisgötu. Elst þeirra er gjafabréf föður hans á hluta í jörðinni Gljúfurá í Arnarfirði sem veitti Jóni síðar bæði kosn- ingarétt og kjörgengi til Alþingis. Þá getur að líta skjöl sem tengjast daglegu lífi Jóns og af- skiptum hans af stjórn- málum. Yngstu skjölin varða dánarbú Jóns. Sýningin er sett upp í samvinnu Þjóðskjala- safns Íslands og Þjóð- menningarhússins í til- efni af því að í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Fyrir er í Þjóðmenningarhús- inu sýningin Óskabarn – æskan og Jón Sigurðs- son, þar sem fjallað er um ævi og störf Jóns frá sjónarhóli barna. Á öðrum degi páska lýkur Sýningu sýninganna – Ísland í Feneyjum í 50 ár sem notið hefur mikilla vinsælda og fengið góða aðsókn á Kjar- valsstöðum. La Biennale di Venezia eða Feneyjatvíæring- urinn er elstur allra tvíær- inga og einn af heimsins merkustu myndlistarvið- burðum. Fyrsta sýningin í Feneyjum var skipulögð árið 1895 og hefur tvíæringur- inn verið haldinn reglulega síðan. Frá því að Ísland hóf þátt- töku í Feneyjatvíæringnum árið 1960 hafa 22 íslenskir listamenn sýnt þar verk sín. Á sýningunni er þátt- tökusaga Íslands rakin en sýningarstjóri er Laufey Helgadóttir listfræðingur. Eitt af verkum Steingríms Eyfjörð frá sýningu hans á Feneyjatvíæringnum 2007. Ísland á Feneyja- tvíæringnum Síðasti séns að sjá Sýningu sýninganna Í þjóðmenn- ingarhúsinu eru nú tvær sýningar tileinkaðar Jóni Sigurðssyni. Netleikverk um allt land Jöklar er netleikhúsverk þar sem veraldarvefurinn er nýttur sem yrkisefni og leik- rými. Verkið segir eina sögu í sex birtingarmyndum og er leikið á milli landshluta; brýst út í gegnum verald- arvefinn inn í raunveruleg rými í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði. Á hverjum stað fyrir sig upplifa áhorfendur söguna út frá þeirri persónu sem stendur frammi fyrir þeim en á netinu geta áhorfendur fylgst með fléttunni eins og hún leggur sig í beinni útsendingu. Hægt er að fylgjast með netsýningu verksins á vefslóðinni her- bergi408.is eða í Bíó Paradís 21. og 23. apríl. Fjölbreyttur hópur kvikmyndagerðarmanna, tónlistarmanna og leikara standa að sýningunni.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.