Dagfari - 01.11.2006, Blaðsíða 2

Dagfari - 01.11.2006, Blaðsíða 2
Spyrjum okkur: Hver er orsökin fyrir hernaðarhyggju meðal þjóða sem hafa aldrei átt her? Svarið er kannski: Áhugi á mannkynssögunni. Fólk sem er vel að sér í sögu þekkir þær hörmungar sem hafa alltaf verið raunveruleiki heimsbyggðarinnar. Sú skoðun að stríð sé söguleg nauðsyn er eins og beint framhald af þessu. Rök friðarsinna eru þar með afgreidd sem barnaleg einfeldni, krúttleg óskhyggja sem sé úr takt við raunveruleikann. Sagan kennir okkur aö meiriháttar vandamál eru sjaldnast afgreidd með samningum og málþófi, heldur járni og blóði. Undir þessi rök má taka að vissu leyti. Stríð verða alltaf til í einni eða annarri mynd. En það er ekki þar með sagt að við eigum að sætta okkur við þau. Næst þegar Bandaríkjamenn ákveða að bomba eitthvert vesalings land þar sem einræðisherrann er með attitjúd þýðir ekkert að yppta bara öxlum og vitna í Bismarck. Þótt mannkynssagan sé magnað skýringartæki fyrir samtímaviðburði megum við ekki nota hana til að réttlæta óhæfu. Sú hugmynd að „sagan kenni“ okkur hitt eða þetta er nefnilega alltaf menningarlega skilyrt. Sagan kennir okkur ekki annað en það sem við viljum sjálf lesa út úr henni. Tal um Sovétríkin er af sama toga. Hin stóra and- stæða 20. aldarinnar, kommúnismi og kapítalismi, er Ijóslifandi í hugum flestra íslendinga enn í dag þótt Sovétríkin séu horfin. Börnin sem eru þessi árin að byrja að mæta á bjórkvöld hjá Heimdalli eru alin upp í þeirri trú að þau séu fylgismenn skoðana sem séu andstæðar við það sem Marx og Lenín prédikuðu. Þetta fólk, sem á eftir að stjórna landinu eftir nokkra áratugi, mun svo líklega koma hræðslunni við Rússagrýluna áleiðis. menningar án þess að samþykkja þá utanríkisstefnu sem stjórnvöld þar í landi aðhyllast. Lenín og sósíalis- minn eiga ekkert skylt við friðarhyggju (undirritaðir voru tíu ára þegar Sovétríkin hrundu). Það er beinlínis dapurlegt að þurfa að hlusta á fólk réttlæta kjaftæði á borð við Guantanamo með því að segja: „Pyntingar eru auðvitaö slæmar. En bíðum við. Getur það hugsast að vinstrimenn og þá sérstaklega kommúnískir vinstri- menn hafi stutt Sovétríkin af miklum mætti og ferðast þangað, lofsungið stjórnunarhætti og líf fólks þar í landi og svo framvegis í áraraðir uns járntjaldið hrundi?“ Með svona útúrsnúningi hlýtur að vera hægt að kalla „kommúníska vinstrimenn“ þær milljónir Bandaríkjamanna sem eru á móti pyntingunum í Guantanamo. Mannkynssagan er ekki föst stærð heldur síbreytilegt, pólitískt afl. Þegar fólk skrifar blaðagreinar um að þaó þurfi að stofna íslenskan her því „sagan kenni okkur“að það sé óábyrgt að hafa engan her, og nefnir Tyrkjaránið (grínlaust) í því sambandi, er kominn tími til að koma sér niður á jörðina. Við stöndum á tímamótum. Bandaríski herinn er farinn úr landi og íslendingar hafa nú öölast tækifæri til að láta verulega að sér kveða í friðarmálum á alþjóðavísu. Með þetta í huga vilja ritstjórar Dagfara leggja fram þá tillögu að nafni Samtaka herstöðvaand- stæðinga verði breytt, enda eru nú engar herstöðvar eftir í landinu. Þannig mætti gera ímynd samtakanna jákvæðari og taka skref í átt að nútímalegri friðar- baráttu. Gefum Che Guevara-bolina til Hjálpræðishersins. Málum yfir hamarinn og sigðina. Hættum að syngja Nallann. Elskum friðinn. Það eru jafnan helstu mistök friðarsinna að gangast inn á þessa tvíhyggju. Friður er eitt, Ameríkuhatur er annað. Það er vel hægt að vera aðdáandi bandarískrar Hjalti Snær Ægisson Þórir Hrafn Gunnarsson Dagfari, tímarit SHA 3. tbl. 32. árg. 2006 Útgefandi: Samtök herstöðvaandstæðinga ISSN 1027-3840 Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjalti Snær Ægisson og Þórir Hrafn Gunnarsson Umbrot: Hallur Guðmundsson Forsíðumynd: Skopmynd Halldórs Baldurssonar úr Blaðinu, okt. 2006. Birt með góðfúslegu leyfi höfundar. Efnisyfirlit Tímamót...................................3 Sundahafnarslagurinn ‘79..................4 Hernámið í Ijósi timans...................8 Blómin í ánni.............................13 Limrur....................................13 Heim til Maryland.........................14 HER ......................................16 Höfnum hermennsku ........................18 Um efnavopn ..............................20 „Gúlag okkar tíma“........................26 Af brigadista í Nicaragua ................28 SHA og endurskoðun stjórnarskrárinnar.....32 Amerika er falleg en hún á sér Ijóta hlið.34 Tímamótayfirlýsing Bandaríkjahers ........36 Eyru Sáms frænda..........................37 Rússneski herinn..........................38 Guðs friður...............................40 Að réttlæta óréttlæti ....................42 SÖNGVAR hermangarans......................47 2 Dagfari • nóvember 2006

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.