Dagfari - 01.11.2006, Qupperneq 4

Dagfari - 01.11.2006, Qupperneq 4
SundaKafnarslagiKriiftift ‘79 „Hestaunnendum freklega misboðið**1 Þessa fyrirsögn mátti lesa á 2. síöu Morgunblaðsins miðvikudaginn 19. september 1979. Herstöðva- andstæðingar höfóu daginn áður mótmælt komu NATO-herskipa til landsins með því að reisa níðstöng með hrosshausi og daginn eftir fóru fram fjöldamót- mæli við Sundahöfn sem enduðu í slagsmálum milli lögreglunnar og herstöðvaandstæðinga. Árið hafði verið viðburðaríkt fyrir herstöðvaand- stæðinga, þrjátíu ár voru liðin frá inngöngunni í NATO og mótmæli herstöðvaandstæðinga fóru að snúast að miklu leyti um kjarnorkuógnina. Minnistæðast hlýtur þó árið 1979 að vera fyrir Sundahafnarslaginn fræga. Hér verður stuttlega rakið hvað átti sér stað. Níðstöngin Þann 6. september 1979 gaf utanríkisráóuneytið út fréttatilkynningu um að átta skip úr fastaflota NATO á Atlantshafi mundu koma í heimsókn til Reykjavíkur dagana 17. -19. september. Samtök herstöðvaand- stæðinga létu að sjálfsögðu ekki á sér standa og undirbjuggu mótmæli. Þegar tilkynningin barst var ákveðið að mótmæla komu herskipanna með því að reisa níðstöng og halda Qöldamótmæli. Aó morgni 18. september sigldu skipin inn í höfnina. Herstöðvaandstæðingar voru þá reiðubúnir með níðstöngina á Laugarnestanga, á toppi hverrar sat blóðugur hestshaus. Á stöngina var rist með rúnum kvæði Jóns Óskars, „Varið ykkur hermenn". Herstöðvaandstæðingar snéru fyrst hrosshausnum að skipunum og níðnum beint að NATO og bandaríska hernum. Því næst var hausnum beint að landinu sjálfu og á „stjórnmálamenn þá er þetta land byggja, svo allir fari þeir villur vega, og enginn hendi né hitti sitt inni, fyrr en þeir reka herinn úr landi og segja ísland úr Nató.“2 Lögreglumenn brugðust skjótt við og náðu hrosshausnum og stönginni af herstöðvaand- stæðingunum. Sigurður Ólafsson söngvari og hesta- maður í Laugarnesi hafði kvartað yfir að stöngin heföi verið reist í leyfisleysi á landareign hans og hefði skelft hesta sem voru í nágrenninu á beit. Samtökin óskuðu þess að fá hesthausinn afhentan á ný en lögreglan neitaði því „á þeirri forsendu að hann hefði verið settur í sorptunnu, þar sem geymdar væru líkams- leifar fleiri dauðra dýra. Því væri af heilbrigðis- ástæðum ekki hægt að afhenda þeim hesthausinn.“3 Stöngina sjálfa fengu SHA þó afhenta til baka. Ásmundur Ásmundsson, þáverandi formaður miönefndar samtakanna neitaöi aö gefa upp viö 4 Dagfari • nóvember 2006 blaðamenn Morgunblaðsins hvar herstöðvaand- stæðingar hefðu fengið hesthausinn, en heimildir blaðsins sögðu að unnið væri hart að því innan sam- takanna að útvega nýjan haus eftir að sá fyrri var brottnuminn. Viöbrögð Þó Mogginn hafi lítið skeytt um hana þótti níðstöngin efni í forsíðufrétt hjá Þjóðviljanum, með fyrirsögninni: „Flotaheimsóknin argvítug ögrun.“4 Á sömu blaðsíðu segir Ásmundur Ásmundsson að þetta sé „frekleg árás af hálfu lögreglunnar" og „ekki hefði hann betur séð en hestar hans [Sigurðar] yndu sér hið besta á beit, enda níðstöngin ekki nálægt þeim.“5 f Alþýðublaðinu segir Benedikt Gröndal, utanríkisráðherra, þetta vera „allt samkvæmt gildandi lögum um komu erlendra herskipa, og ekkert frábrugðið.“6 Samdægurs höfðu Samtök herstöðvaandstæðinga sent frá sér fréttatilkynningu þar sem samtökin „mót- mæla harðlega komu átta herskipa úr fastaflota Nato til landsins. Því til fulltingis hefur níðstöng verið reist í Laugarnesi, mögnuð og rúnum rist, þar sem þessum manndrápsfleytum er óskað ófarnaðar í hvívetna, svo og þeim myrkraöflum sem að baki standa, Nato og handbendum þess hérlendis og erlendis." Samtökin töldu komu herskipanna tilraun til að „skapa jákvæð viðhorf meðal landsmanna til vígbúnaðar og hernaðarbrölts." Herstöðvaandstæðingar kalla komu herskipana ögrun vió þá „sem staðið hafa gegn vopna- skaki og vígaglaumi [...] [og[ hvern þann mann sem ber friðarhugsjónir í brjósti."7 í Alþýðublaðinu 20. september eru svo þjóðþekktir einstaklingar spurðir hvort níðstöng herstöðvaandstæðinga hafi þjónað málstað þeirra. Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, svarar svo: „Það er vandséð ennþá, enda er þetta forn galdur. Tíminn einn verður að leióa það í ljós.“8 Hver veit nema Thor hafi hitt naglann á höfuðið og níðurinn hafl loks hitt í mark 15. mars 2006, þegar tilkynnt var um brottflutning hersins af Miðnesheiði. Slagurinn 19. september „Herstöðvaandstæðingar munu ekki láta þessum ögrunum ósvarað. Því mun efnt til útifundar þar sem herskipin liggja vió bryggju inn við Sundahöfn klukkan 17:30 á miðvikudag. Níð herstöðvaand- stæðinga, sem hvein í rám og reiðum skipanna á leið til íslands, og tafði þau [,..]mun þar hrína á flotanum svo í minnum verður haft allt til ragnaraka.“9 Mönnum var bersýnilega heitt í hamsi. Lögreglan þurfti að bregðast vió og setja menn á vörð við

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.