Dagfari - 01.11.2006, Blaðsíða 14
Heim til Maryland
Nú þegar bandaríski
herinn er farinn frá
íslandi er útséð um aö
okkur verði boöið aftur
inn í stofuna hjá hinum
óbreytta Stuart og
fjölskyldu hans frá
Maryland. Sem táknar
það auðvitað aö engin
Mildred færir okkur
kaldan Coors Light og
kanadabúrbón á
stofuborðið, að engin
Mandy og Luke, eða hvað
þau hétu, börnin þeirra
Stuarts og Mildredar,
komi döpur en sæt á svip
inn í stofuna til að bjóða
foreldrum sínum góða
nótt í ellefu hundraöasta
og fjórtánda skiptið áður
en þau halda inn í
herbergió sitt til aö sofna í
íslenska álpappírsmyrkrinu.
Nú þegar herinn er farinn
komum við inn í íbúð
Stuarts og Mildredar og
þar er enginn Stuart eöa
Mildred. Ekki heldur Jim
eöa Lenny, eöa hvaö þeir
hétu, hermannavinir
Stuarts. Og þar af
leiðandi ekki Fran eöa
Rosalyn, konur Jim eða
Lenny, og engin Mandy,
dóttir Stuarts og
Mildredar, sem núna er
ábyggilega komin meö
mann og börn, gott ef ekki
skilin líka og komin meö
offituvandamál, og þaðan
af síður Luke bróðir
hennar því hann fór í
herinn eins og pabbi sinn
og var drepinn í írak og
sendur í álkistu heim til
Maryland.
- Bragi Ólafsson
14 Dagfari • nóvember2006