Dagfari - 01.11.2006, Page 17

Dagfari - 01.11.2006, Page 17
blekkingin um öryggi er engu að síður til staðar). Hugurinn hvarflar til bresku prinsanna, þeirra Harry og William, en stanslaus fréttaflutningur er af ævin- týrum þeirra í Sandhurst herskólanum. Harry er útskrifaður og mun vera ákafur að komast til írak, því hann má ekki heyra á það minnst að sér verði hlíft stöðu sinnar vegna. Yfirboðarar hans mega þó ekki heyra á það minnst að senda hann þangað því sú hin sama staða stofnar hersveitarfélögum hans í bráða hættu á átakasvæði. Allt þetta drekka breskar hús- mæður - og ég - í sig beint úr slúðurblöóunum. Maður horfir á ferðamennina stilla sér upp nálægt lífvörðum með bjarnarskinnshúfur og í ljósmynda- brosunum örlar ekki á gagnrýni eða tortryggni í garð vopnaða hermannsins við hlió þeirra. Munurinn á þeirri mynd sem við íslendingar höfum af her og hermennsku og þeirri mynd sem Bretar hafa af hermennsku er æði mikill. Hvernig má líka annað vera, þegar gjörvöll þjóðin telur sig eiga forfeðrum sínum í breska hernum allt að launa? Á haustin stíga fram aldraðir dátar, skrýddir heiðursorðum og bjóða til sölu valmúa úr pappa svo að borgararnir geti heiðrað minningu fallinna frænda og minnst hins dýrkeypta sigurs 1918. Verðið er kaupandanum í sjálfsvald selt. Og vegfarendur þyrpast að söluborðunum og láta klinkið streyma ofan í plastföt- ur öldunganna. Hvernig getum við íslendingar skilið hvaó þýtur í gegnum huga hins breska þegns þegar hann nælir hárauðan pappavalmúa í barm sér að hausti til? En ekki síður má spyrja: Hvernig getur breskur almenningur skilið hvernig aðrir geta fundið til andúðar gegn maskínunni? Hernaðarminnismerki eru á hverju götuhorni, dáða af vígvellinum er minnst oft á hverju einasta ári, í neðanjarðarlestinni er auglýst eftir fjárframlögum í eftirlaunasjóð aflóga her- manna og þjóðsöngurinn hyllir þjóðhöfðingjann sem herforingja. Hvernig er hægt að fara fram á það að alþýða manna sem er alin upp við þessar aðstæður sé annað en hliðholl hernum? Og hún er það. Herinn þykir, eftir því sem ég kemst næst, fremur jákvætt afl hérna á Bretlandseyjum. Þrátt fyrir andstöðu margra við hernaðinn hafa menn ekkert upp á herinn að klaga. Það eru stríðsherrarnir sem mönnum er uppsigað við. Manni finnst að maður sé hálfgerð heimótt að velta þessu fyrir sér, að skilja ekki það sem allir hinir virðast skilja svo undurvel. Hvernig má það vera að það sé í góðu lagi að þjálfa hluta af æsku landsins upp sem drápsvélar, á þeim forsendum að það sé hollt fyrir ómótaða unglinga að kynnast aga? Hvernig er hægt að vera fylgjandi því að vígbúast, en vera samt and- snúinn hernaði? Við Islendingar erum svo sannarlega engir aukvisar þegar kemur að föðurlandsást, en við sitjum alltaf uppi með þetta pínlega 700 ára tímabil sem við viljum helst ekki telja með. Við þekkjum ekki þennan þunga sögunnar sem hvílir á breskum herðum; okkur er það framandi að skilgreina okkur út frá hernaði, út frá sigrum og landvinningum. Heimurinn er gegnumsýrður af hernaði og auðvitað þekkja íslendingar það eins og aðrir. Við horfum á bandarískar stríósmyndir í sjónvarpinu, við þýðum samviskusamlega ástúðlegar lýsingar Júlíusar Sesars á breiðfylkingum sínum í menntaskóla, við bombard- erum geimorka í tölvuleikjum og við sverjum skáta- hreyfingunni hollustu í æsku. En við munum aldrei skilja til fulls traust þjóðar til varnarliðs síns. Við erum svo lánsöm að skilja ekki óttann við óvinaherlið, sem hvetur ungt fólk til þess aö taka sjálfviljugt upp vopn fyrir land sitt og þjóð. Við erum þeirrar gæfu aðnjótandi að her virðist okkur villimannsleg stofnun, sveipuð blekkingunni um siðmenningu. Á íslandi þarf enginn að afsala sér sjálfsforræði til margra ára til þess að eiga kost á menntun, húsaskjóli eða þátttöku í lúðrasveit. Það er okkar gæfa. íslensk átakasaga takmarkast að miklu leyti við bændur í slagsmálum. Það hljómar ekki mjög heims- borgaralega, en einmitt þess vegna - vegna þess að við höfum staðið utan við skipulögð ofbeldisverk - njótum við þess munaðar að geta velt fyrir okkur hugmyndin- ni um her án þess að saga eða þjóðarstolt trufli dóm- greind okkar. Siðmenningin er að svo mörgu leyti blekking. Það er svo ótalmargt sem viðgengst í veröldinni sem við frjálslyndu lúxusgrísirnir á Islandi höldum að ætti ekki að viðgangast í siómenntuðum löndum. Bretland á að heita eitt af siðmenntuðustu löndum heims, þar sem dagleg samskipti eru niðurnjörvuð í kurteisis- siðum og tedrykkju, en hér tíðkast samt hagkvæmnis- hjónabönd; hér fara fram hnífabardagar á götum úti og hér eru tæplega 200.000 þegnar hluti af vopnuðum hersveitum landsins. Unglingar sem eru ekki nógu gamlir til að fá afgreitt áfengi eru nógu gamlir til þess að skrá sig í herinn og að deyja fyrir land sitt. Hvers konar siðmenning er þaö? Þaó hlýtur því að vera hlutverk landa eins og Islands að æpa að keisarinn sé klæðalaus. Sama þó að hann eigi fallega lúðrasveit. - AmcLís Dúnja Þórarinsdóttir Dagfari • nóvember 2006 17

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.