Dagfari - 01.11.2006, Síða 38

Dagfari - 01.11.2006, Síða 38
Rússneski Herinn Rússland var sannkallað heimsveldi á 20. öldinni. Herinn er samofinn þeirri ímynd og afrek hersins í baráttunni við nasista hafa skipað stórt hlutverk opinberlega frá lokum stríðs. Stríðslokadagurinn er til að mynda enn stór hátíðisdagur. En auk þess að vera nálægur Rússum í sögu og þjóðarímynd er herinn líka áberandi í hinu daglega lífi. Ungir menn í herklæðum sjást viða á götum en þaö eru venjulega kadettar á leiðinni í og úr her- skólum, hermenn að vinna ýmis samfélagsstörf eða hermenn í fríi. Þess utan hefur herinn bein áhrif á líf margra því rússneskir karlmenn eru skyldugir að undirgangast tveggja ára herþjónustu. Rússneski herinn hefur rúmlega milljón hermenn sem eru flestir í land-, sjó- eða lofthernum. Fyrir utan þessar þrjár meginstoðir hersins hefur hann geim-, eldflauga- og fallhlífaher og umfangsmikla starfsemi til stuðnings hernum. Rússneski herinn hefur nokkrar herstöðvar utan Rússlands en þeim hefur fækkað á undanförnum árum. Nýlega var tekin ákvörðun um aö loka herstöðvum í Víetnam og á Kúbu þannig að eftir standa einungis herstöðvar í fyrrum Sovétlýðveldum og flotastöð í Sýrlandi. Langstærsta verkefni rússneska hersins frá falli Sovétríkjanna hefur verið hinn umdeildi hernaður í Téténíu sem sér eins og stendur ekki fýrir endann á. Engum dylst að fall Sovétríkjanna hafði í för með sér umbyltingu á flestum sviðum rússnesks samfélags en fyrir ríkið hefur það reynst afar erfitt verkefni að halda við umfangsmiklu opinberu kerfi. Skólar, spítalar og fleiri stofnanir eru reknar áfram þrátt fyrir ónóga fjár- muni af fólki sem fær svo lítil laun að þau duga ekki til framfærslu ein og sér. Herinn hefur ekki farið varhluta af þessu. Hann á í erfiðieikum með að útvega hermönnum viöunandi aðbúnað, húsnæöi og mat. Einnig eru hergögn ónóg og úreldast hratt. Hugsanlega má skýra langlífi þessara stofnana að hluta til með því að það væri óhugsandi að þær störf- uðu ekki áfram. Kennarar og heilbrigðisstarfsfólk sætta sig við sitt hlutskipti því þau hafa hvergi annað að leita eftir vinnu við sitt hæfi. En svona aðstæður leiða af sér mikil vandamál, t.d. áfengissýki og spillingu. Martraðir rússneskrar æsku Sá sem umgengst ungt fólk í Rússlandi kemst fljótt að því að herinn hefur slæmt orðspor. Auk þess að að- búnaðurinn sé lélegur heyrast hræðilegar sögur um ofbeldi gagnvart nýliðum og þar til nýlega áttu þeir sem fóru í herinn það á hættu að vera sendir illa undirbúnir í átökin í Téténíu. Síðan 2004 hefur her- liðið þar verið mannað atvinnuhermönnum eingöngu. Drykkjuskapur er vafalítið ein af helstu ástæðum ofbeldisins. Þaö er erfitt að gera sér grein fyrir því í hve miklum mæli ofbeldi gegn nýliðum viðgengst og sumir segja það stórlega ýkt. Engu að síður koma reglulega fram í dagsljósið sögur af misþyrmingum hermanna. Örlög Andrejs Sytsjovs, sem missti báða fætur og kyn- færi eftir barsmíðar yfirmanns síns, komust í heims- fréttirnar í febrúar síðastliðnum. Samtök mæðra her- manna eru sjálfstæð samtök sem berjast fyrir réttind- um hermanna og hjálpa einstökum hermönnum að leita réttar síns. Á heimasíðu þeirra (www.ucsmr.ru) má lesa fjölda hiyllingssagna af illri meðferð ungra hermanna. Spillingin í hernum á sér margar birtingarmyndir, t.d. heyrast sögur um að hermenn selji óprúttnum aðilum vopn og skotfæri. Einnig eru dæmi um að liðsforingjar leigi hermenn sem vinnuafl. í desember síðastliðnum var herforingi rekinn úr hernum fyrir slíkt athæfi og í sumar var liðsforingi í Pétursborg dæmdur til fjár- sektar fyrir að hafa leigt hermann uppgjafaherforingja til að vinna í sumarhúsi þess síðarnefnda. Honum var haldið föngnum þar í hálfan annan mánuó og mátti þola grófar barsmíðar og svelti. Þegar þessi grein var skrifuð hafði dómur í máli herforingjans fyrrverandi ekki fallið. Hvort þessar sögur bera vitni útbreiddu ofbeldi eða eru einstök tilvik breytir ekki því að tilhugsunin um að fara í herinn vekur ugg hjá ungum Rússum. Herinn hefur enda átt í stökuStu vandræðum með að framfylgja herskyldunni. Þeir, sem geta, fara ekki í herinn og kerfið býður upp á margar undanþágur og fresti. Nú er svo komið aó þangað fara aðeins um 10% skyldugra. Hinir eru undanþegnir vegna heilsu eða geta frestað herþjónustu vegna þess til dæmis að þeir eru í háskóla, eiga aldraðh eða veika foreldra eða ung börn. Margir múta læknum til að fá vottorð eða múta jafnvel sjálfum fulltrúunum sem sjá um aó framfylgja herskyldunni. 38 Dagfari • nóvember 2006

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.