Dagfari - 01.11.2006, Síða 42

Dagfari - 01.11.2006, Síða 42
Að réttlæta óréttlæti Pyntingar, fangaflug og ábyrgð íslenskra stjórnvalda s é Því miður virðast pyntingar undantekningalítið vera stundaðar í öllum ríkjum og stofnunum sem fást við ofbeldi. Ógnarstjórnir í öðrum heimsálfum eru þar mest áberandi en herir lýðræðisríkja eru oft litlu skárri. Bandarísk stjórnvöld hafa sérstaklega sætt harðri gagnrýni fyrir að leyfa pyntingum að viðgangast í baráttu sinni gegn hryðjuverkum. hægt að bjarga mun fleirum frá verra böli. í tilfelli Bandaríkjanna er vitanlega um að ræða að reynt er að afla upplýsinga um yfirvofandi hryðjuverkaárásir með því að beita hugsanlega hryðjuverkamenn miklu harðræði í von um að þeir láti bugast og komi upp um samverkamenn sína. Ástæðan er ekki sú að Bandaríkin séu sek um sérlega hrottaleg mannréttindabrot, a.m.k. ekki sé miðað við önnur lönd. Skýringarnar virðast einkum vera tvær. Annars vegar er búist við meiru af Bandaríkjunum vegna þess aó stjórnkerfi þeirra er gagnsætt og lýðræðislegt samanborið við önnur ríki sem gerst hafa sek um viðlíka mannréttindabrot. Hins vegar hafa bandarískir ráðamenn gert ítrekaðar tilraunir til að réttlæta og afsaka voðaverk hersins á pólitískum vettvangi.1 í þessari grein hyggst ég bæði taka fyrir réttlætingu bandarískra ráðamanna fyrir þeim ómannúölegu yflrheyrsluaóferðum sem beitt er og afsökunina sem svo var notuð til að firra sig ábyrgð á verknaðinum. Að því loknu ætla ég að skoða þátt íslenskra stjórnvalda í mannréttindabrotum Bandaríkjanna, sér í lagi með tilliti til svonefnds fangaflugs bandarísku leyni- þjónustunnar. Réttlætingin: Almannahagur Réttlætingin sem veitt er fyrir ómannúðlegri meðferð á föngum er ævinlega sú að með því að gera einum illt 42 Dagfari • nóvember 2006 Ég ætla að byrja á því að nefna - en hunsa svo í framhaldinu - nokkrar mótbárur sem oft eru settar fram gegn slíkum mannréttindabrotum. í fyrsta lagi má mjög efast um að pyntingar séu raunverulega notaðar í þeim tilgangi að koma upp um mannskæðari árásir - í mörgum tilvikum virðast pyntingarnar frekar vera notaðar sem refsing en yfirheyrsluaðferö. Sem refsingar eru pyntingar svo augljóslega óréttlætan- legar út frá siðferðilegu sjónarmiði að til að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur er rétt að ijalla aðeins um þær pyntingar sem notaðar eru í yfirheyrslum. í öðru lagi verður ekki fjallað um áhættuna sem fylgir því að vega og meta hugsanlegt böl sem hægt er að koma í veg fýrir með ómannúðlegum yfirheyrslum. Her- og leyniþjónustumenn hafa enga tiyggingu fyrir því að yfirheyrslur þeirra komi nokkrum manni að gagni - einkum í ljósi þess að réttlætingin vísar til þess sem hefði getað gerst, en ekki raunverulegra atburða. í þágu umræðunnar skulum viö samt gera ráð fyrir að til séu aðferðir til að meta slíkt böl á móti sársaukanum og óhamingjunni sem pyntingar valda föngum.

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.