Heimilisritið - 01.06.1945, Qupperneq 16
andlit, en mikið og breitt upp-
andlit, gerir bezt í því að greiða
líkt og sýnt er hér á myndinni
(stúlkan til hægri). Hárið legst
þá lítið eitt fram yfir ennið og
þrengir það, en fellur svo í
þykkum lokkum niður yfir eyr-
un.
Athugið að lita ekki kinnarn-
ar nema aðeins efst. — í þessu
sambandi er rétt að minnast
þess, að ef kinnarnar eru inn-
fallnar, má ekki nota kinnalit
nema ofurlítið undir augunum.
Ef kinnbeinin eru framstand-
andi ber einkum að forðast að
lita kinnarnar mjög ofarlega.
Myndirnar sýna að öðru leyti
hvernig bezt fer að haga hár-
lagningu og andlitsfegrun eftir
því, hvernig lögun andlitsins er.
Vert er og að veita því sérstaka
athygli, hvernig hálsmál á bezt
við sérhvert andlit.
ENDIR
Úr eiirkus I ANNAO
— Komm/úniátar cru þeir, sem
nota of margax kommur.
— Hann gerir ekkert og hefur
allan daginn til þess.
— Prófessorinn eyddi löngum.
tíma til að rannsaka hvers vegna
prófessorar eru utan við sig — og
svo gleymdi hann niðurstöðunni
— Hvað verður af hnefanum,
þegar lófinn er opnaður?
— Hvað verður af kjöltunni,
þegar staðið er upp?
— Skilti í hóteli: Bjóðið þjóa-
unum ekki þjórfé, þeir móðgast af
því.
—' Getur vinandi þjáðst af and-
arteppu?
— Allt, sem þú segir kvenmanni.
verður notað gegn þér!
— Hann baktalaði hana svo hún
heyrði.
— Hlutleysi er það að bíða og
sjá í hvora áttina blæs byrlega.
— Hún talaði tíu tungumál, en
gat aldrei munað orðið „nei“ í
nokkru þeirra.
— Hjónaband er það að fá mat,
þegar mann langar ekkert í hann.
— Bjartsýnismaður er sM, sem
sér ljós, án þess acS það sé, og
svartsýnismaður er sá, 'sem reynir
að slökkva það.
— Hann er þögull eins og lokaður
sími.
— Gufa er vatn, sem hefur orð-
ið vitlaust af hita.
— Hann er ekki latur, bara
fæddur þreyttur.
— Þríhyrningur er hringur með
þremur hornum.
— Þegar eg kom í þennan heim
átti ég ekkert. Mér hefur alltaf
tekist að halda eign minni.
14
HEIMILISRITIÐ