Heimilisritið - 01.06.1945, Qupperneq 27
JASS
DANSHLJÓMSVEIT ÞÚRIS JÚHSSOHAR
Hér birtist mynd af danshljómsveit
Þóris Jónssonar, sem nú hefur spil-
að á Hótel Borg í um það bil hálft
annað ár.
Á myndinni sjást, talið frá vinstri:
Kjartan Runólfsson, Adolf Theodórs-
son, Jóhannes Eggertsson, Skafti
Sigþórsson, Baldur Kristjánsson og
Þórir Jónsson.
Sú breyting hefur alveg nýlega
orðið á hljómsveitinni, ,að Adolf er
hættur, en í stað hans hefur komið
Ólafur Pétursson, sem áður var í
hljómsveit Aage Lorange. Ennfrem-
ur spilar Skafti nú ekki lengur með
nema á dansleikjum.
Allir hafa þessir menn spilað í
danshljómsveitum bæði í Reykjavík
og fleiri kaupstöðumsvo árum skiptir.
Kjartan leikur á trompet og er
auk þess einsöngvari hljómsveitar-
innar. Hefur hann oft sungið í út-
varpið, bæði með þessari hljóm-
sveit og eins hljómsveit Bjama
Böðvarssonar, en mfeð henni spilaði
hann og söng lengi vel í Lista-
mannaskálanum.
Adolf leikur á tenor-saxofón og
er þrautreyndur hljómlistarmaður.
Hann var m. a. lengi í hljómsveit
Carls Billich á Hótel ísland.
Jóhannes er Gene Krupa hljóm-
sveitarinnar — trommuspilarinn —
og þykir ómissandi, enda er þetta
þriðja hljómsveitin, sem hann spilar
í á Borginni.
Skafti spilar á altsaxofón og bregð-
ur fyrir sig fiðlunni í viðlögum.
Hann hefur verið í mörgum hljóm-
sveitum m. a. Blue Boys og hljóm-
HEIMILISRITIÐ
25