Heimilisritið - 01.06.1945, Síða 28
sveit Carls Billich. Hann hefur gert
allmikið að því að þýða erlenda
danslagatexta á íslenzku, m. a. „Suð-
ur um höfin“.
Baldur er píanóleikari og tónskáld
hljómsveitarinnar. Hann hefur spil-
að í mörgum hljómsveitum eins og
hinir, og getið sér góðan orðstír. Af
danslögum þeim, sem hann hefur
samið, má nefna „Þú biður mín“,
sem var mjög vinsælt á sínum tíma.
Og svo er það sjálfur sveitarstjór-
inn, Þórir Jónsson. Hann spilar
venjulega á altsaxofón og stundum á
fiðlu. Annars þarf hann ekki kynn-
ingar við. Það líða ekki mörg kvöld
svo, að við heyrum ekki í fiðlunni
hans í gegnum útvarpið, annað hvort
í útvarpskvartettinum, útvarpshljóm-
sveitinni eða þá bara með undirleik
Fritz Weisshappel. Og það var hann,
sem Konservatoríum í Kaupmanna-
höfn tók upp á sína arma hérna um
árið og kenndi ókeypis — ekki af
því að Þórir hafi verið blankur, nei,
heldur af því að hann þótti svo
framúrskarandi efnilegur.
— Eg ætla að gera úrslitatilraun
til að ná í þjóninn!
Gene Krupa
Gene Krupa er talinn vera einn
af þremur beztu tmmmuspilurum
Bandaríkjanna um þessar mundir.
Hann er nú á hátindi frægðar sinn-
.ar og einhver mest umtalaði dans-
hljómsveitarstjóri heimsins.
Hann heitir réttu nafni Eugene
Bertram Krupa og er fæddur í
Chicago 15. jan. 1909. Ætlun for-
eldra hans var að hann yrði prest-
ur, en Krupa hafði frá barnæsku
verið mikið gefinn fyrir hljómlist
og myndað hljómsveit þegar hann
var í skóla. Árið 1929 komst hann
í hljómsveit Red Nichols, en þar var
þá fjöldi uppvaxandi jassstjarna, m.
a. Benny Goodman. Árið eftir stofn-
aði Goodman sjálfur hljómsveit og
fékk Krupa í hana til að leika á
trommu, og þar var hann þangað
til hann stofnaði sína eigin hljóm-
sveit.
Krupa er ekki stjórnandi á borð
við snillinga eins og Goodman eða
Ellington, en hefur örugt eyra og ó-
þrjótandi „energí“. Hann æfir sig
marga klukkutíma á dag og notar
þá gúmmímottu í stað trommunnar,
til þess að æra ekki nábúana. Því
þegar Krupa er í essinu sínu með
hljómsveit sinini og ber trommuna,
eru engin lýsingarorð til, sem lýsa
krafti, ötulleik og gleðiofsa hans.
Krupa gleymir þá öllu nema músík-
inni, og hrífur áheyrendur — og
áhorfendur — með sér til landa gleði
og glaums.
Krupa hefur ritað bók sem heitir
„About and lectured on drummond,
also composes". Hann hefur komið
fram í mörgum kvikmyndum og heit-
ir sú síðasta: „George Whites Scan-
dals of 1945“.
26
HEIMILISRITIÐ