Heimilisritið - 01.06.1945, Page 30

Heimilisritið - 01.06.1945, Page 30
og enginn gat horft inn til rnín. Nú getur fólk staðið á svölum hérna á móti og horft beint inn í stofu til mín. Það er ekki einu sinni svo vel, að fólkið í íbuð- inni, sem er beint á móti mínum gluggum, sé tillitsfullt eða kunni sig. Ef svo væri, gæti ég kanski vanizt því að íbúðir séu þarna, en það er ekki því að heilsa“. ' Köbbe reykti og var hugsandi á svip. Þegar vel var lifnað aftur í pípunni bætti hann við: „Það má vel vera að ég sé sér- vitringur að einhverju leyti, en ég blanda mér ekki í einkamál annarra. Ég veit ekki einu sinni hvað allir hérna í húsinu heita og ég þekki ekki heldur fólkið. sem flutt er inn hérna á móti. En úr því að ég læt aðra afskipta- lausa, þá finnst mér ég geta heimtað að aðrir láti mig einn- ig afiskiptalausan". „Nú, en áreita nágrannarnir þig þá beinlínis?“ „Ég veit ekki hvað ég á að kalla það. Á hverju kvöldi þeg- ar ég kem inn hingað, stillir kvenmaður sér upp á svalirnar á móti og glápir hingað inn. Þegar hún verður þreytt sezt hún á stól. Þetta er meira en hægt er að láta bjóða sér, og ég get alls ekki skilið þetta. Hvaða ánægju hefur hún af því að einblína á mig, gamlan manninn?“ „Hún meinar víst ekkert illt með því“, sagði ég og tók mál- stað ókunnu konunnar, sem svo stórlega hafði vakið gremju gamla vinar míns. Mér fannst líka að hann tæki sé.r þetta nær en efni stóðu til. „Hvers vegna dregurðu ekki tjöld fyrir gluggana?“ spurði ég hikandi. „Hvers vegna? Á svona fögr- um kvöldum er ég vanur að hafa báða gluggana upp á gátt og hleypa inn hreinu lofti. Þú veist að þetta er mitt vanasæti, hérna við borðið, og það fer þá í taug- arnar á mér að starað sé á mig, sko... þarna er hún“. Köbbe benti aftur með píp- unni, og ég þurfti að standa á fætur til að sjá. Hann hafði rétt að mæla. Ung stúlka stóð á svölunum og starði inn í stofuna hans. Þetta var lagleg stúlka, en það hafði hann ekki sagt mér, og hún stóð sannarlega ófeimin áfram. „Er þetta ekki ósvífni?11 spurði hann fyrir aftan mig. „Jú, en hún stendur varla lengi. Ef ég fer út í gluggann og horfi á hana, hlýtur hún að fara inn til sín“. Ég reyndi það, en án þess að hún léti á nokkru uppburðarleysi bera. Köbbe gekk til mín. „ÞAÐ ÞÝÐIR ekkert. Sérðu ekki að hún stendur alveg ófeil- 28 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.