Heimilisritið - 01.06.1945, Síða 35

Heimilisritið - 01.06.1945, Síða 35
minntist þess, þegar gamla kon- an hafði komið með miklu fasi inn á skrifstofu sonar síns, óð og uppvæg yfir því, að hann hafði sést nokkru áður með fremur illa ræmdri leikkonu í nætur- klúbb. Það var þá, sem hún sá Jane í fyrsta skipti, og hún hafði látið sem hún sæi hana ekki er hún gerði eitraðar athugasemd- ir um menn, eins-og Jack, sem væru næmir fyrir áhrifum frá öðrum og gerðu sér dælt við snoppufríðar aðstoðarstúlkur sínar. Slíkt væri hættulegt. Jane þrýsti á bjölluhnappinn og beið í' angistarspenningi eftir því sem í vændum var. Brytinn bauð henni að gera svo vel — frúin ætti von á henni og væri í dagstofunni. Allt hið innra í húsinu var svo íburðarmikið, að Jane hefði naumast getað dreymt um slíkt óhóf og skraut. Frú Chenoweth, gráhærð og virðuleg, heilsaði henni mjög vingjarnlega. En fyrir stúlku með þá reynslu er Jane hafði fengið, ekki sízt í stöðu sinni sem einkaritari, var vandalaust að sjá, að þessi hlýleiki var gríma einbeittrar og tíginnar konu, sem var að gera sitt bezta til að sýna lágstéttarmanni vin- arhót. „Fáið yður sæti, góða“, sagði frú Chenoweth broshýr. „Við höfum nauman tíma til að ræða málið“. Jane hneig niður á setbekk og muldraði: „Hvaða mál?“ Frú Chenoweth brosti smeðju- lega, hin þjóstuga rödd hennar var tempruð og hakan var ein- beitnisleg og framsett. Jane mundi að hún hafði séð áþekk- an svip á Jack, einkum þegar einhver stóð í vegi fyrir hon- um. „Sonur minn hefur viðurkennt að hann sé orðinn ástfanginn af yður — einkaritara sín'um. Og kjáninn sá arna segir að hann ætli að giftast yður! Eg get sagt yður það strax, að þetta er eins og hver önnur vitleysa. Hann er á þeim aldri, þegar menn láta fréistast af fyrstu fríðleiksdrós- inni, sem verður á vegi þeirra. Ég hef alltaf sagt honum, að HEIMILISRITIÐ 33

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.