Heimilisritið - 01.06.1945, Side 39
■ BERLÍNARDAGBÓK
^sasnisJBLAÐAMANNSl
Ejtir WILLIAM L. SHIRER
„Áfrani yfir grafirnar!“ — 9. apríl 1940
Berlín, 24. janúar 1940.
Ég held, að Percival W. upp-
gjafa kaupsýslumaður, amerísk-
ur af þýzkum ættum, sem hefur
dvalið hér á landi lengst ævi
sinnar, hafi gert sér það ljóst,
sem ég hef verið að reyna að
skilja. Við ræddum um skilning
Þjóðverja á siðgæði, sæmd og
skyldu. Hann sagði:
„Þjóðverjum þykir það sið-
ferðilega rétt og heiðarlegt, sem
kemur heim við erfikenningar
þeirra um, hvernig Þjóðverji tel-
ur að Þjóðverja beri að breyta,
eða ef það styður hagsmuni
Þjóðverja eða Þýzkalands, En
Þjóðverjar hafa enganóhlutræn-
an skilning á siðgæði, heiðri né
réttri breytni“.
Hann skýrði þetta með góðu
dæmi. Þýzkur vinur hans sagði
við hann:
„Er það ekki hræðilegt athæfi
af Finnum, að ráðast á Rússa?
Það er herfileg rangsleitni".
Þegar W. leiddi rök að því við
hann, að Finnar gerðu í raun og
veru ekki annað en það, sem
vænta mætti af hverjum heiðar-
legum Þjóðverja í þeirra spor-
um, verðu frelsi sitt og sjálf-
stæði gegn óréttmætum yfir-
gangi, svaraði vinur hans höst-
uglega:
„En Rússar eru vinir Þjóð-
verja“.
Samkvæmt þessu er Þjóð-
verjum rétt að verja frelsi sitt
og sjálfstæði. Finnum er það
rangt, af því að það erfiðar sam-
búð Rússa og Þjóðverja. Hér
skorti þýzka andann hinn óhlut-
ræna skilning.
Þetta skýrir ef til vill hið full-
komna samúðarleysi Þjóðverja
með Pólverjum og Tékkum og
skilningsskort á vandræðum
þeirra.
Margt staðfestir þann grun,
HEXMIT iLSRITIÐ
37