Heimilisritið - 01.06.1945, Page 42
var lögð á safnhilluna. Hún var
aldrei sýnd almenningi.
Berlín, 23. febr. 1940
Afmælisdagurinn minn. Þrjá-
tíu og sex ára, og afrekin engin.
En hvað æviár miðaldra manns
eru hraðfleyg!
Varð fyrir óþægilegu atviki
við svissnesku landamærin þeg-
ar ég skrapp til Genf um dag-
inn. Svissar tqku frá mér allt
nestið, súkkulaði, niðursoðinn
mat, kaffi, whiskyflösku og
sápu, sem Winant gaf mér. Ég
skil, hvað þeim gengur til. Þeir
eru lokaðir frá umheiminum,
vilja þalda sínu og ekki láta það
lenda í Þjóðverjum. — En mér
sárnaði. Þýzkalandsmegin af-
klæddu Gestapomenn tvo af
hverjum þrem farþegum, þar á
meðal allar konur.
Berlín, 25. febr. 1940.
X sagði mér tröllasögu í dag.
Hann staðhæfir, að ráðgert sé
að fela S. S. áhlaupasveitir í
farmrúmum nokkurra flutn-
ingaskipa, senda þær til hafna
á Norðurlöndum, í Belgíu og
Afríku og taka þessa staði. Ég
skil ekki þetta. Jafnvel þótt þeir
slyppu inn í hafnirnar, sem efa-
samt er að takist, hvernig geta
þeir haldið þeim?
Berlín, 27. febr. 1940.
Marwin hefur verið að snuðra
upp ýmislegt, sem varpar
skemmtilegri birtu yfir ýmis
einkenni í þýzku þjóðlífi á dög-
um styrjaldarinnar. Haldnir eru
skólar, þar sem konur og konu-
efni S.S.-manna eru búnar und-
ir að verða góðar húsmæður og
frjósamar til að framleiða fall-
byssufóður í næstu styrjöld.
(Heinrich Himmler, yfirmað-
ur Gestpo og leiðtogi S.S.-manna
tilkynnti 28. október 1939: „Nu
verður það hið mikla hlutverk
þýzkra kvenna af góðum ættum
að gerast barnsmæður her-
manna, sem fara til vígvallanna,
jafnvel utan hjónabands, ekki
af lauslæti heldur djúpu og ein-
lægu siðgæði, hömlulaust af
borgaralegum lögum, siðvenjum
og skoðunum, þótt þau kunni
að vera nauðsynleg. — Eins er
það með menn og konur, sem
starfa á heimastöðvum að ráð-
stöfun stjórnarinnar. Á þeim
hvílir á þessum tímum enn
þyngra en nokkru sinni hin heil-
aga skylda að verða enn feður
og mæður. S. S.-menn munu
annast öll börn, skilgetin og ó-
skilgetin, sem missa feður sína
á vígslóðum“.).
Konunum er einnig kennt,
hvernig þær eigi að lesa blöð
nazista og hlusta á útvarp. Mar-
win sá aðeins tvær bækur í
svefnherbergjum þeirra, „Trúin
á norræna valdið“, og „Karl-
menn“.
40
HEIMILISRITIÐ