Heimilisritið - 01.06.1945, Page 44

Heimilisritið - 01.06.1945, Page 44
Hitler flutti ræðu í dag. Rödd hans var þrungin hatri, en þess hefði mátt vænta, að hann spar- aði það á þessum degi. Er mað- urinn engum öðrum tilfinning- um gæddur? Hann hét þjóð sinni því, að við lok þessarar styrj- aldar myndi Þjóðverjum auðn- ast hinn glæsilegasti hernaðar- sigur, sem mannkynssagan greinir frá. Hann hugsar ein- göngu um vopn. Skilur hann þátt fjármálanna í þessum ó- friði? Berlín, 19. marz 1940. John Chapman leit inn. Hann stjórnar Business Week og er nýkominn frá Ítalíu og Balkan- llöndum. Ýmislegt sagði hann, sem gott var að heyra. Hann ef- ast um, að ítalir fari í ófriðinn. Það geri ég líka. Það er hægt að beita þá hafnbanni svo að hrífi. John sagcjist hafa orðið þess var, að þrótt sé að draga úr fasistum, snerpan sé orðin minni. Mússolíni sé farinn að slaka á taumunum. Hann eldist mjög, fita sæki á hann og hann unir löngum með ungu hjákon- unni sinni ljóshærðu, og John var sagt í Róm, að hún hefði ný- lega alið honum barn. Ég hitti X majór í ónefndu sendiráði í kvöld. Hann telur að Þjóðverjar hafi nú þrjár leið- i.r um að velja. 42 1. Þjóðverjar geta samið frið. Hann hyggur, að Hitler óski friðar, og hann hafi ráð á að bjóða friðarkosti, sem væru sómasamlegir og aðgengilegir öllum öðrum en Englendingum, skilmála, sem myndu tryggja honum mest af því, sem hann hefur þegar unnið. Slíkur frið- ur, sagði hann, myndi honum jafngóður þýzkum stórsigri. 2. Þjóðverjar geta haldið á- fram á sömu braut og nú, haldið Norðurlöndum og Ítalíu hlut- lausum og í fjárhagslegri sam- vinnu við sig og lagt suðaustur- hluta Evrópu undir áhrif sín, einkum Rússland. Þetta tæki tíma, að minnsta kosti þrjú ár, en heppnaðist þetta, væri hafn- bann Bandamanna áhrifalaust. 3. Þjóðverjar gætu reynt að herða sóknina á Vesturvigstöðv- unum. Það telur hann ósenni- legt. Þýzka herforingjaráðið hefur beyg af Maginotlínunni og franska hernum. Hann viður- kennir, að takast megi að vinna hana, en það kosti gífurlegar fórnir og óvíst sé um að sigur- inn sé þá vís. Tilkynnt er í dag, að allar kirkjuklukkur úr kopar skuli teknar niður og notaðar í fall- byssur. í næstu viku hefst alls- herjar söfnunarferð um landið allt, hús úr húsi, fil þess að skrapa saman allt úrgangsdót úr HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.