Heimilisritið - 01.06.1945, Síða 45
tini, nikkeli, kopar, eiri og öðr-
um málmum, sem Þjóðverja
vantar. í dag skipaði herstjórn-
in eigendum allra bíla, sem lagt
er upp samkvæmt ökubanni
vegna ófriðarins, að þeir yrðu
níutíu af hverju hundraði að af-
henda rafgeyma sína.
Berlín, 25. marz 1940.
D. N. B. segir í dag: „Á víg-
stöðvunum fram með ofan-
verðri Rín sýndu frönsku her-
sveitirnar á páskadaginn greini-
lega andúð sína á þessari brezku
styrjöld, og hve fávíslegt þeim
finnst að Frakkar og Þjóðverj-
ar ræki f jandskap eftir bendingu
frá Bretum“.
Berlín, 28. marz 1940.
Þjóðverjar þola ekki ófriðinh,
nema þeir haldi áfram að fá
sænska járnið, en mest af því
er flutt sjóleiðis frá norsku höfn-
inni í Narvík á þýzkum skip-
um. Þau læðast suður með Nor-
egsströndum innan landhelgi,
og eru þar óhult fyrir brezka
flotanum. Sumir okkar furða sig
á, hvers vegna Churcill hefur
aldrei tekið í .taumana til að
hindra þetta. Nú virðist hann
munu verða knúinn til þess. Nú
er um lífið að tefla fyrir Þjóð-
verja. X staðhæfði við mig, að
ef brezkur tundurspillir færi
inn í norska landhelgi, myndu
Þjóðverjar taka til sinna ráða,
En ekki er ljóst, hvað þeir geta
gert. Þýzki flotinn er ekki jafn-
oki hins brezka.
Berlín, 8. apríl 1940.
Bretar tilkynna, að þeir hafi
lagt tundurdufl í norskri land-
helgi til þess að hindra þýzk
járnflutningaskip að sigla frá
Narvík. í Wilhelmstrasse er
sagt: „Þjóðverjar vita, hvernig
þeir eiga að svara“i En hvernig
svara þeir?
Berlín, 9. apríl 1940.
Hitler hefur lagt undir sig tvö
ríkin enn á þessum vordegi. —
Nazistaherinn réðst inn í hlut-
lausu smáríkin, Noreg og Dan-
mörku, til þess að „vernda frelsi
þeirra og sjálfstæði“, eins og
komist er svo ráðvandlega að
orði í hinni opinberu tilkynn-
ingu. Eftir einar tólf stundir
virðist öllu lokið. Danmörk
gerði griðasáttmála við Hitler
fyrir aðeins einu ári og er nú
gersamlega yfirunnin. Kaup-
mannahöfn unnin í morgun, Os-
ló í dag, Kristiansand í kvöld.
Allar helztu hafnir Noregs her-
teknar, Narvík, Þrándheimur,
Bergen, Stafangur. Þetta eru
furðuleg tíðindi.
Það er öllum furðuleg tíðindi,
hvernig nazistar komust þang-
að, rétt við nefið á brezka flot-
HEIMILISRITIÐ
43