Heimilisritið - 01.06.1945, Blaðsíða 46
anum. Það er augljóst, að her-
ferðin hefur verið hugsuð, áætl-
uð og undirbúin fyrir löngu, og
áreiðanlega hafin áður en Bret-
ar lögðu tundurduflin innan
norskrar landhelgi í fyrradag.
Það tekur að minnsta kosti þrjá
daga að sigla til Narvíkur frá
þýzkum höfnum.
Klukkan tuttugu mínútur yf-
ir tíu í morgun fengum við
skyndiboð um áríðandi blaða-
mannafund í utanríkismálaráðu-
neytinu, og átti hann að hefjast
hálfellefu, Við biðum í hálfa
stund. Þá strunsaði Ribbentrop
inn, íklæddur grængráum og í-
burðarmiklum einkennisbúningi
hermanna í utanríkisráðuneyt-
ínu og virtist eiga heiminn all-
an. Schmidt, blaðafulltrúi hans,
ungur maður, feitur og silaleg-
ur, tilkynnti tíðindin og las til-
kynningu þá, sem send var
Dönum og Norðmönnum í
morgun snemma, þar sem skor-
að var á þá að þiggja „vernd-
ina“ og þeir voru varaðir við
því, að „vopnaðar, þýzkar her-
sveitir myndu brjóta alla mót-
spyrnu á bak aftur með hverj-
um vopnum, sem fyrir hendi
eru, og því leiðir allt viðnám til
algerlega gagnslausra blóðsút-
hellinga“.
Ribbentrop rauk upp eins og
naðra þegar lokið var upplestr-
inum, og sagði m. a.: „Herrar
mínir! Innrás Bandamanna í
landhelgi Noregs í gær var hið
hroðalegasta ofbeldi og skerð-
ing á rétti hlutlausrar þjóðar.
Hún jafnast við stórskotahríð
Breta á Kaupmannahöfn 1807.
En“, bætti hann við og brosti
gleitt, — „þeir komú okkur ekki
á óvart.--------Það var ætlun
Breta að ná fótfestu í Skandi-
navíu og ráðast þaðan á Þýzka-
land. Við höfum, herrar mínir,
óhrekjanleg sönnunargögn fyrir
þessu í höndunum“.
„Og nú getur alþjóð séð“, hélt
hann áfram og minnti einhvern-
veginn á slöngu, „hundingjahátt
þann og grimmd, sem Banda-
menn reyndu að beita til þess
að kynda nýtt ófriðarbál. Og nú
hafa verið sett og tilkynnt ný
alþjóðalög, sem heimila einum
styrjaldaraðila að svara ólög-
legum tiltektum annarra styrj-
aldaraðila með ólöglegu athæfi.
Þýzkaland hefur unnið sjálfu
sér þennan rétt. Foringinn hef-
ur svarað.------Þýzkaland hef-
ur lagt undir sig lönd Dana og
Norðmanna og mun verja hið
raunverulega hlutleysi þeirra
til styrjaldarloka. Þannig hefur
valinkunnum ríkjum í Evrópu
verið bjargað f.rá yfirvofandi
hruni“.
Þessi litli karl, þessi ötuli
kampavínssali, sem hafði náð í
dóttur húsbóndans, komið sér í
44
HBIMILISRITIÐ