Heimilisritið - 01.06.1945, Síða 48
mikil hafi verið háð í Skaga-
hafi, skammt þaðan sem sjóor-
ustan við Jótlandssíðu var háð
í heimsstyrjöldinni. Einu skipin,
sem Þjóðverjar viðurkenna að
hafa misst, eru 10,000 smálesta
beitiskipið Blúcher, sem sökk í
Oslófirði, og 6,000 smálesta
beitiskipið Karlsruhe, sem sökk
úti fyrir Kristianssand. Strand-
virki Norðmanna skutu • þau
bæði í kaf að morgni 9. apríl.
Hef frétt, að Hitler varaði
Svía við alvarlegum afleiðing-
um, ef þeir gæta ekki hlutleys-
is á þessum hættulegu tímum.
Eftir því sem ég kemst næst,
eru Svíar skelkaðir.
Brezka útvarpið í kvöld hef-
ur það eftir Churchill, sem hann
á að hafa sagt í neðri málstof-
unni, að „Hitler hafi orðið á
alvarleg hernaðarleg skyssa“, og
að brezki flotinn muni nú taka
strendur Noregs á vald sitt og
sökkva öllum skipum í Katte-
gat og Skagahafi. Guð gefi, að
svo megi fara.
Berlín,J4. apríl 1940.
Loks hef ég komist að því,
hvernig Þjóðverjar fóru að því
að hertaka helztu hafnir Nor-
egs við nefið á brezka flotan-
um, án þess að hafa nægan flota
styrk sjálfir. Þýzkar hersveit-
ir með skotvopnum og birgðum
voru sendar til ákvörðunarstaða
sinna með flutningaskipum, sem
létust vera á leið til Narvíkur að
sækja sænskt járngrýti. Skíp
þessi sigldu innan norskrar land-
helgi, eins og þau hafa jafnan
gert síðan styrjöldin hófst, og
því varð brezki flotinn þeirra
ekki var. Kaldhæðni örlaganna,
að norsk herskip vísuðu þeim
jafnvel veginn til ákvörðunar-
staðar og höfðu skipun um, að
vernda þau fyrir brezka flotan-
um!
En þetta skýrir það þó ekki,
hvernig Bretar létu helming
þýzka flotans, sjö tundurspilla,
eitt stórt beitiskip og eitt orustu-
skip sleppa óséð alla leið upp
að Noregsströndum.
Þýzka flotastjórnin viður-
kennir, að öflug, brezk flota-
deild hafi ráðizt inn í Narvík í
gær og sökkt öllum sjö tundur-
spillum hennar, sem voru þar,
en þeir segjast halda borginni.
Hitler sáir nú því sæði í Ev-
rópu, sem á sínum tíma mun
ekki aðeins verða honum höf-
uðbani, heldur og þjóð hans.
Berlín, 17. apríl 1940.
Hitler sendi konungsf jölskyld-
unni í Danmörku heillaóskir
sínar í dag í tilefni af því, að
ríkiserfingj anum fæddiát dóttt-
ir! —
Þýzku blöðin og útvarpið
stefndu stórskeytum að Hol-
46
HEIMILISHIXIÐ