Heimilisritið - 01.06.1945, Síða 50
Ekki orð um þetta í blöðun-
um. Þýzkir lesendur fá 1 smá-
skömtum aðeins hinar þægi-
legri og sigurvænlegri ófriðar-
fregnir.
Sé, að hernám Þjóðverja veld-
ur hruni í Danmörku. Þrjár
milljónir nautgripa voru 1 land-
inu, jafnmargt af svínum og
um tuttugu og fimm milljónir
af hænsnum, sem lifðu á inn-
fluttu fóðri, mest frá Ameríku
og Manchukuo. Nú næst ekki 1
það. Danir verða að slátra mestu
af búfénaði sínum, en hann
veitti þjóðinni að miklu leyti
viðurværi.
Berlín, 22. apríl 1940.
Viðnámið gegn þýzka hern-
um, sem ryðst áleiðis norður til
Þrándheims, er að harðna. —
Þýzka herstjórnin talar 1 fyrsta
sinn í kvöld um harðvítuga
mótstöðu á þessum slóðum. En
flugherinn þýzki veitir Bretum
þungar búsifjar á aðalstöðvum
þeirra í Namsos, Aandalsnesi
og Dombas. Milch hershöfðingi,
hægri hönd Görings, hefur ver-
ið sendur til Noregs, til þess að
stjórna flughernum. Nú eiga
Þjóðverjar mest undir honum.
Berlín, 23. apríl 1940.
Jósep Terboven, ungur naz-
isti og ókvalráður, sem var hér-
aðsstjóri Ejjóðverja í Köln og
48
reyndist Fritz Thyssen ofjarl
þar, hefur verið skipaður ríkis-
stjóri í Noregi. Það þýðir, að ef
Hitler sigrar þar, verður Nor-
egur ein nazistahjálendan enn.
Berlín, 29. apríl 1940.
Úrslitaorustan um Noreg
verður líklega háð í þessari viku.
Eg heyri á Þjóðverjum, að þeir
eru öruggari nú en þeir voru,
þegar ég fór fyrir einni viku.
Leiðangurslið Breta er auðsjáan-
lega ekki eins öflugt og þeir
bjuggust við.
Bretar þurfa að fá nokkur
hrakföll bæði á sjó og landi. Þá
herða þeir sig ef til vill af al-
vöru.
Síðar. Yfirherstjórnin tilkynn-
ir, að þýzkar hersveitir á norð-
urleið frá Osló, og þýzkar her-
deildir á suðurleið frá Þránd-
heimi hefðu náð saman skammt
fyrir sunnan Þrándheim. Hitler
hefur því unnið kapphlaupið.
Ekki er ljóst, hvar Bandamanna-
herinn er, né hvað hann hefst að.
Enda skiptir það ekki miklu
máli. Þeir höfðu dásamlegt tæki-
færi til þess að stöðva Hitler
og misstu það fyrir vettlingatök.
Hinn versti grunur hefur reynzt
réttur. Bretar lögðu sig aldrei
af alvöru fram í baráttunni um
Noreg.
Framh. í næsta hefti.
HEIMIUSRITIÐ