Heimilisritið - 01.06.1945, Side 53
fullur á svip. „Maurice, kæri
vinur“, kallaði hann. „Ég hef í
allt kvöld verið að reyna að ná
sambandi við þig. Þú sagðist
ætla í klúbbinn. En þar hefurðu
ekki sézt“.
„Það er eðlilegt“, svaraði
Maurice. „Ég fór í leikhús“.
Hann hló með sjálfum sér að
þessari hálfsönnu fyndni.
Arnold Bloomfield sagði: „Ég
hef verið ákaflega áhyggjufull-
ur. Hefurðu tekið glasið, sem var
í herberginu mínu? Á því stóð
„Aspirín?"
Maurice glápti á Arnold. Hann
missti sígarettuna, sem hann hélt
á milli fingranna. „Já, ég tók það.
En því spyrðu? Ég hef alltaf
aspirín á mér, ég fæ svo oft höf-
uðverk“.
„Vonandi hefur þú ekki notað
neina töflu. Það er auðséð á þér.
Ég hefði ekki átt að nota þetta
glas, úr því þessi áletrun var á
því. Ég lét nefnilega eitur í það.
Það er nefnt Cynathene og er
eins konar meðal, en baneitrað.
í guðs bænum, fáðu mér glasið.
Eg vil ekki verða valdur að
morði. Hvað er annars að sjá
þig? Þú ert að detta“.
Maurice var náfölur. Það var
nærri liðið yfir hann. Hann
horfði óttasleginn á frænda sinn.
Svo þaut hann að símanum og
hringdi í ofboði til Werming-
tons.
Hás rödd svaraði. Röddin
spurði: „Er það doktor Pax-
mann?“
„Nei, nei, það er Lane lækn-
ir“, sagði Maurice. „Hefur frú
Wermington versnað?“.
Wermington stundi: „Hún —
er — dáin! Ég gaf henni tvær
töflur. Og að fimm mínútum
liðnum var hún liðið lík------
Þér verðið að koma alveg tafar-
laust.....“ J.
ENDIR
SKRÍTLUR
NORSK SJÓMANNSÁST.
Sjómaðurinn: „Aldrei skyldi mað-
ur treysta kvenfólkinu. Ég hef frétt
að kærastan mín í Englandi sé allt-
af að skemmta sér með hermönn-
um, konan mín í Skotlandi sjáist
oft með sergent og kærustuna mína
héma í bænum sá ég á götu með
sjóliða í gær, svo að mig skyldi ekki
furða þó að konan mín heima í
Noregi væri mér ótrú“.
SÍMINN HRINGIR.
— Halló, Þetta er Ari Bjarnason.
Ég var búinn að tala við Jón um
að koma heim til hans í dag. Vitið
þér hvort hann muni vera heima
núna?
— Já, það er hann, svaraði vinnu-
konan.
— Og ætli að hann verði heima
dálitla stund enn?
— Já, áreiðanlega; ég stend ein-
mitt í því að þvo skyrtuna hans.
HEIMILISRITIÐ
51