Heimilisritið - 01.06.1945, Blaðsíða 60
„Hver veit hvort ég sé hann
nokkru sinni á lífi framar“, sagði
hún kjökrandi, þegar Matilda
bað hana að reyna að vera ró-
lega.
Loks kom læknirinn út og
brosti góðlátlega til Önnu. Hún
brosti á móti í gegnum tárin og
reyndi að sigrast á svima, sem
ásótti hana.
„Má ég fara inn til hans?“
sagði hún bænarrómi.
„Já, sem snöggvast“, svaraði
læknirinn. „En hann er mjög
þjakaður enn, og þér verðið að
gæta þess að þreyta hann ekki“.
Anna gekk inn í skýlið. Mar-
tin lá máttvana og fölur, á
mjórri dýnu með ábreiðu ofan á
sér. Hann var með lokuð augu,
en opnaði þau, þegar Anna gekk
til hans. Hann virtist verða
steinhissa á komu hennar.
„Anna! Hvernig í ósköp....“
„Martin, ástin mín! Þú mátt
ekki tala, læknirinn segir það.
Hugsaðu ekki um það, hvernig
á því stendur að ég er hérna.
Hafðu það eitt hugfast, að héðan
í frá munum við aldrei skilja“.
Hún kraup við hlið hans og
þau héldust lengi í hendur. Hann
lá hreyfingarlaus með lokuð
augun. Loks stóð hún upp og
gekk út til hinna.
„Hann sefur“, sagði hún, og
augu hennar ljómuðu af ham-
ingju.
58
Þegar komið var undir kvöld,.
komu þær aftur. Hann var þá
orðinn næstum jafngóður. Hann
brosti ef hann sá Matildu í
þessu óvenjulega umhverfi.
Hún gekk þá til hans og sagði
í sínum algenga hryssingstón:
„Læknirinn segir, að þú sért
vel fær um að ferðast, svo að
ég hef hugsað mér að fara með
þig heim til Monks Longton í
kvöld. Eg sé enga ástaeðu til þess
að þessi flóðgarður fái einkarétt
á að njóta ávaxtanna af þeirri
erfiðisvinnu, sem þú átt fyrir
höndum. Monks Longton hefur
verið vanrækt nógu lengi. Nú
skaltu snúa heim og sinna
skyldustörfum þínum“.
Hann leit á hana efablandinn
á svip.
„En Matilda, ég —“
„Svona nú, ekkert „en“ leng-
ur1', sagði hún höst. „Þú ert þó
alltént erfingi minn, og ég býst
við að ég hafi rétt til að vænta
einhverrar aðstoðar frá þér“.
„Erfingi þinn!“ Hann botnaði
ekki neitt í neinu. „Nú, en þú
sagðir síðast þegar við sáumst
__U
„Hvað um það, síðan hef ég
breytt arfleiðsluskrá minni“,
sagði hún snögg. „Eg fór til lög-
fræðingsins míns í London í gær
og breytti arfleiðsluskránni þér
í vil. Eg talaði líka við sérfræð-
inginn. sem ég fór til fyrir fimm
HEIMILISRITIÐ