Heimilisritið - 01.06.1945, Side 63
Gable, Metro-Goldwyn-Mayer, Cul-
ver City, Califomia, U.S.A.
ENSKIR LAGATEXTAR.
Spuming: Myndir þú vilja vera
svo góð að birta fyrir mig tvo enska
texta? Annar heitir „I will be seeing
you“ og hinn „Little Marlene".
Svar: Annar textinn birtist á öðr-
um stað hér í blaðinu, hinn væntan-
lega áður en langt um líður.
SAMVIZKUSPURNINGAR
Sp.: Langar til að spyrja þig
nokkurra spuminga varðandi leik-
ara.
1. Hvorri hefurðu meira dálæti á
— Judy Garland eða Betty Grable?
2. Hvaða kvikmyndaleikarar held-
urðu að séu þeir mestu í heimi?
3. Koma allar beztu kvikmyndirn-
ar hingað?
4. Hvaða filmstjömur þykir þér
mest gaman að sjá á bíó? V.S.
Sv.: 1. Ef ég á að segja eins og
mér finnst, þá myndi ég taka Judy
Garland fram yfir Betty Grable.
2. Af dauðum og lifandi karí-
mönnum sem leikið hafa í kvik-
myndum er Charles Chaplin vafa-
laust beztur. Næstir honum munu
vera þeir Emil Jannings, Harry
Baur, Humphrey Bogart, Paul Muni
og Spencer Tracy. Hvað kvenfólkið
snertir er Greta Garbo sennilega
bezt eða Pola Negri. Þar næstar
eru þær Marlene Dietrich, Bette
Davis og Katharene Hepburn.
3. Yfirleitt hefur það verið, þótt
oft komi þær ekki fyrr en seint og
siðar meir, sökum þess að þær
kosta minna, þegar nýjabrumið er
komið af þeim.
4. Til dæmis hef ég alltaf gaman
af myndum með Humphrey Bogart,
Clark Gable, Bette Davis, Gary
Cooper, Jennifer Jones og Ingrid
Bergman, svo nokkur nöfn séu
nefnd, sem ég man í bili.
EÐLILEG ÞYNGD
Sp.: Eg er 175 cm. að hæð. Viltu
gera svo vel og segja mér hvað
eðlileg þyngd mín á að vera?
F. P.
Sv.: Því á ég bágt með að svara
nema vita aldur þinn líka. Ef þú
ert 19 ára gömul áttu að vera 63,5
kg. Værir þú 29 ára ættirðu að
vera 67 kg.
AÐ NÁ AF SÉR VÖRTUM
Sp.: Viltu vera svo góð og gefa
mér ráð, sem dugar, til að ná af mér
vörtum? Stella.
Sv.: Ágætt er að ná þeim af sér
með ísediki. Dýfðu yddaðri eldspýtu
ofan í það og láttu dropa af edik-
inu drjúpa á vörtuna, en gættu þess
að láta það ekki fara út fyrir hana.
Endurtaktu þetta ef það ber ekki
árangur í fyrstu atrennu. — Oft
hafa illkynjaðar vörtur náðzt af
með því að nudda þær með krít og
það er meira að segja fullyrt að
þær hverfi, ef þetta ódýra og hættu-
lausa meðál er notað af þolinmæði
og þrautseigju. — Þriðja húsráðið
sem ég hef heyrt, er að dýfa sund -
urskornum lauk ofan í salt og
nudda svo vörtuna oftsinnis með
lauknum. — Fleiri ráð eru til, eins
og það, að binda ullarbandsspotta
um vörtuna að kvöldi, leysa hann
að morgni og grafa hann í moid.
Þegar spottinn er rotnaður á vartaa
að vera horfin! — Annars er hæg-
ur vandinn að leita til lænkis, ef
ekkert af þessu dugar.
Eva Adams.
HEIMILISRITIÐ
61