Heimilisritið - 01.04.1946, Side 8

Heimilisritið - 01.04.1946, Side 8
að mjnnsta kosti tuttugu þýzk- ir hermenn. Stríðhærður risi, sem sat klof- vega á stól og reykti langa krít- arpípu talaði til þeirra á lýta- lausri frönsku: „Jæja, herramenn, hefur ykk- ur gengið vel veiðin?“ Þá lagði hermaðurinn fullan fiskpokann, sem hann hafði ver- ið svo hugulsamur 'að taka með, við fætur liðsforingjans. Prúss- inn brosti. „Ekki sem verst, sé ég er, en hlustið nú á mig og verið ekkert hræddir. Eftir því sem ég kemst næst, eruð þið tveir njósnarar, sendir til að kynna ykkur hvað ég aðhefst. Ég tek ykkur til fanga og læt skjóta ykkur. Þið látizt vera á veiðum, til þess að ég uggi ekki að mér. Þið hafið nú verið svo óheppnir að falla mér í hendur. Þannig er stríðið. En fyrst þið komuzt hingað fram hjá útvörð- unum, hljótið þið að hafa lykjl- orð til að komast aftur. Gefið mér. upp þetta lykilorð, og ég skal sleppa ykkur.“ Vinimir tveir stóðu þögulir hlið við hlið, fölir af skelfingu. Taugaóstyrkurinn, sem læsti sig um hendur þeirra, svo að þær fóru ofurlítið að skjálfa, kom upp um þá. „Það skal aldrei neinn fá að vita um það. Þið verðið látnir fara í friði. Leyndarmál ykkar hverfur með ykkur. Ef þið neit- ið, er það sama og dauði. Kjósið nú!“ Þeir stóðu hreyfingarlausir án þess að bæra varjrnar. Prússinn var hinn rólegasti og hélt áfram að tala, um leið og hann benti með höndunum til árinnar. „Gerið ykkur í hugar- lund að vera eftir fjmm mínút- ur komnir njður á botn yatns- ins. Eftir fimm mínútur. Ég býst við, að þið eigið ættingja?" Ennkváðu við þrumur í Mont- Valerien. Fiskimennirnir tveir stóðu enn þögulir. Þjóðverjinn sneri sér við til að gefa fyrirskipanir á móðurmáli sínu. Því næst færði hann stólinn ofurlítið til hliðar, ejns og til þess að vera ekki of nærri föngunum, en tólf menn tóku sér stöðu í tuttugu skrefa fjarlægð, með riffla í höndum. „Ég gef ykkur eina mínútu“, hélt liðsforinginn áfram. „Ekki sekúndu framyfir!“ Þá reis hann skyndilega upp, gekk til fransmannanna tveggja, tók Morissot við hönd sér, leiddi hann dálítið afsíðis og sagði vð hann í lágum hljóðum: ,Fljótur nú. Lykilorðið? Vinur þinn fær ekkert að vita um það. Ég skal þykjast láta ykkur báða lausa“. Morissot hafði ekkert aðsegja. Þá leiddi Prússinn Monsieur HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.