Heimilisritið - 01.04.1946, Síða 10
Lífseigt hjónaband
örgeðja leikara
Sannleikurinn um Ray
Milland og konu hans
Eftir LOUELLE PARSONS
MANUÐUM SAMAN spáði ég
því, að svo myndi að lokum fara,
að Milland-hjónin myndu taka
saman aftur. Það kom líka á dag-
inn. Ég skal segja ykkur hvernig
á því stóð, að ég áræddi að halda
þessu fram, þótt flestir teldu það
fjarstæðu, er eitthvað höfðu
kynnt sér málið.
Ef þið hefðuð tækifæri til að tala
við ltay, eins og ég hef haft, þá
mynduð þið komast að raun um,
að honum hefur aldrei þótt vænt
um nokkra aðra stúlku en konuna
sína, og að ósamlyndi þeirra átaf-
ar eingöngu af því, sem hann nefn-
ir „ört geð og skapbrestir“, sem
ekki er óeðlilegt að leikari hafi, er
unnið hefur jafn-mikið og Ray,
undanfarin þrettán ár.
Milland-hjónin höfðu skilið
þrisvar, og síðast héldu bæði, að
nú væri það búið. Eitt sinn stóð
hann við barborð og var að blanda
sér Martini-cocktail. Þá sagði
hann: „Mal er yndisleg kona, góð,
falleg, alveg gallalaus, og hún er
glaðlynd. Ef nokkuð er að henni,
þá er það helzt það, að hún hlust-
ar um of á raunatölur annarra.
Það kom fyrir, að þegar ég kom
heim voru kanski fjórir eða fimm
'kunningjar þar og allir voru þeir
að segja henni frá áhyggjum sín-
um. Ég óskaði mér að þeir færu
heim til sín eða hefðu aldrei kom-
ið, því að ég hafði líka mínar á-
hyggjur og þurfti að ræða um þær
við hana. Hún er svo uppgerðar-
laus og ráðholl, að allir, sem hafa
einhverjar áhyggjur, koma með
þær til hennar. Ég er Welsh-mað-
ur að ætt og því örgeðja, en á
samt bágt með að koma orðum að
því sem ég vil segja.
Ég hef aldrei litið neina stúlku
hýru auga frá því ég hitti Mal.
Ég kynntist henni fyrir þrettán
árum í spilaklúbb hjá Mörthu
Sleeper. Ég horfði á Mal og drap
8
HEIMILISRITIÐ