Heimilisritið - 01.04.1946, Síða 13
væri. En ég veit að henni leið ekki
vel.
Til þess að frásögn Rays verði
•ekki misskilin er bezt að segja alla
söguna eins og hún er. Hann fær
ógurlegan höfuðverk öðru hverju
og líður þá miklar kvalir. Hann
segir að þá þoli hann ekki að hund-
ur gangi eftir götunni hvað þá
meira!
„Ég vil bara vera aleinn, þegar
ég fæ höfuðverkinn“, segir hann.
„Ég get ekki talað við neinn og
ég þoli þá ekki hinn minnsta há-
vaða“.
Honum þykir gaman að fara í
leikhús og hlusta á góða tónlist.
Segist hafa erft það frá forfeðrum
sínum í Welsh að þykja vænt um
hljómlistina. Hann á mikið safn
af grammófónplötum með sígild-
um verkum og leikur þau oft sér
til skemmtunar.
I sambandi við grammófónplöt-
urnar er til fyndin saga um þau
Mal og Ray. Einu sinni, er þau
voru skilin, langaði Ray allt í einu
svo mikið til að hlusta á plöturnar
sínar, að hann fór heim. En Mal
var ekki heima. Ray ætlaði að
fara að spila á fóninn, er hann tók
• eftir því, að nálin var ryðguð. IJá
reiddist hann svo, að hann náði
ekki upp í nefið á sér. Mal kom
heim um ellefu-leytið, og þau fóru
strax að rífast. Hvorugt vildi láta
undau. „Ef hún hefði beðið mig
að vera heima hefði ég strax látið
undan. En ég gat ekki beðið um
fyrirgefningu“.
Þegar Ray skildi við Mal fór
hann til vinar síns, Ray Crane, og
bjó hjá honum. Þeir höfðu búið
saman er Ray Milland kom fyrst
til Hollywood. Crane hefur gengið
vel kaupsýsla og er nú efnaður
maður, en í gamla daga voru þeir
báðir mjög fátækir. Milli þeirra er
einlægur vinskapur.
Það einkennilega er, að hann er
aldrei uppstökkur þegar hann er
að leika. Hann gerir ekki háar
kröfur og er vinsæll meðal með-
leikara sinna. Hann fær beztu hlut-
verkin og hefur leikið í 50 stór-
myndum síðustu 11 árin.
Leikur hans í hlutverki drykkju-
mannsins í „The Lost Weekend“
hefur vakið geysimikla athygli á
Ray sem listamanni. Ég býst við
að hann hafi nú lært sína lexíu og
verði góði drengurinn. (d)
E. S.
Ray Milland var valinn bezti kvik-
myndaleikari síðast liðins árs. Hann
hlaut Oscar-verðlaunin, og það er ekki
talið nokkurt vafamál um rétt hans til
þeirra heiðursverðlauna. Það var fyrir leik
hans í hlutverki drykkjumannsins í „The
Lost Weekend", sem hann fékk viður-
kenninguna. Þeir sem komu til greina,
næstir honum, voru þeir Gene Kelly, Bing
Crosby, Gregory Peck og Cornel Wilde.
ENDIB
HEIMH.ISRITIÐ
11