Heimilisritið - 01.04.1946, Side 20

Heimilisritið - 01.04.1946, Side 20
lega áberandi sumarfötum og það var eftir henni, að staðnæmast ein- mitt þar sem sólargeislarnir féllu á hár hennar, til þess að vekja at- hygli á, hversu glóbjart það var. Hún var eins og steindauð og bjánalega skreytt tízkubrúða, þar sem hún stóð með nýtízku hatt sveiflandi í annarri hendinni, þarna langt uppi í sveit. Kátínan við borðið breyttist í óskemmtilega þögn. Donald stóð upp og leiddi Amber til sætis. Hil- ary kveikti sér í sígarettu, til þess að beina athygli sinni frá því, þegar Donald bauð unnustu sinni góðan dag með kossi. Hún hugs- aði með sér, að það væri enginn vandi að vera í sama herbergi og Donald og Arnber, ef hún gætti þess aðeins að sjá ekki það, sem olli henni sársauka. Hún brosti til Farrars, sem var að rökræða, hvort rétt væri að ganga með staf. Dagurinn leið fyrr en varði með hlátruni og smásonnum og dálitlum kvíðahrollum, og um kvöldið spil- uðu þau nokkrar rúbertur í bridge. Um sunnudaginn var fagurt veð- ur og þau óku í stóra bílnum, sem Donald átti, til gömlu kirkjunnar. Þegar þau höfðu skoðað hana sagði Donald: , Hver er með að ganga heim?“ Farrarhjónin litu löngunaraug- um til bílsins og Donald hló. , Þið eruð ljótu letingjarnir. Farið þið í bílnum. Við fjögur —“ hann átti við Hilary, Amber, Hennesey og sig, „göngum“. Hann hallaði sér að Amber. ,.Það er ekki nema tæpur kílómetri, elskan, þú þreytist ekki af að ganga það, ha?“ Amber var skynug. Hún kunni hlutverk sitt til hJítar. Hún vissi, að rétt var að láta undan kenjum og óskum unnustans, fyrir brúð- kaupið. „Ég vil langtum heldur ganga“, sagði hún sætri rödd. Þau héldu af stað eftir krókótt- um veginum, sem lá í gegnum lítið sveitaþorp. Hilary gekk ’við hlið- ina á Hennesey með hendur í vös- um, bar höfuðið hátt og kipraði saman augnalokin í sólskininu. Donald og Amber gengu nokkrum skrefum á undan. Fyrir utan eitt af litlu húsunum í þorpinu stóð hópur manna. Hil- ary sá að Donald nam staðar og heyrði að hann spurði hvað um væri að vera. Hún heyrði ávæning af samtal- inu. „Litli drengurinn hennar frú Granleys.... hættulega veikur... getur engu komið niður“. Og hún sá að Donald beygði höfuð sitt og gekk inn í húsið. Amber var að kveikja sér í síg- arettu, þegar þau hin komu á vett- vang. „Þetta er ekkert“, sagði hún og blés reykjarstrók yfir öxlina á sér. „Það er einhver krakkaangi, sem er illt í hálsinum. Ég skil ekki, hvað Donald heldur sig geta gert 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.