Heimilisritið - 01.04.1946, Síða 42

Heimilisritið - 01.04.1946, Síða 42
aríið í skipasmíðastöðinni“. „Það er ekkert á iþví að græða“. „Einn af verkstjórunum þaðan kom að tala við mig í gær- kvöld“, sagði Morgan. „Bað mig að koma aftur, bauð mér annan virmutíma og mikið af eftirvinnu. Ég gaf það frá mér. Ef ég hefði ekki rekizt á þig, býst ég við, að ég hefði orðið að — —“ „Heppilegt fyrir okkur báða“. greip Kessler fram í. „Við mun- um koma okkur saman. Taktu saman föggur þínar og fárðu úr þessari íbúð —. Við förum úr borginni klukkan sjö í kvöld. Hittu mig á stöðinni skömmu fyrir þann tíma“. „Ég verð þar“, sagði Morgan glaðlega. „Bregztu mér nú ekki“, sagði hinn. „Ég treysti á þig. Ekki seinna en fimm mínútum fyrir sjö, mundu það“. Kessler fór fram í skuggalegt fordyrið og sneri sér þar við: „Hefurðu nóg til þess að borga reikninginn þinn héma?“ Morgpn kinkaði kolli. „Ég skal sjá um það“. Hann horfði á Kessler ganga niður stigama, lokaði síðan dyr- unum, gekk aftur inn í herberg- ið og raulaði dægurlag, um leið og hann dró ferðatösku und- an rúminu og fór að troða í haraa. Það var ekki miklu fyrir að fara, og hann hafði nógan tíma. Fyrst Kessler hafði tekið hann að sér, var útlitið nú blóm- legt og ekkert til að hafa á- hyggjur út af. Morgan vafði í flýti saman saman óhreinum stígvélum, vinnuhönzkum og gamalli húfu, sem hann hafði notað í skipa- smíðastöðinni, og henti því út í hom. Hann vildi ekki sjá þetta dót framar. Svo gekk hann allt í einu að þvottskálinni, tók umslag und- an speglinum og taldi inni- hald þess. Walsh hafði sent hon- um meira en fimm hundruð dollara frá því hann fór til Evr- ópu, peninga, sem hann hafði unnið í spilum og Morgan átti iað geyma fyrir hann. Morgan hafði enn ekki snert einn eyri af þeim. Einhvem veginn gat hann ekki fengið sig til þess, hvemig sem á því stóð. Ef til vili var það samvizkan, þótt hún , hefði sjaldan ónáðað hann það sem af var ævmnar. Ef Walsh kæmi ekki aftur------- Morgan gat ekki sætt sig við þá tilhugsun, þrátt fyrir sím- skeytið. í einni fataskúffunni, sem hann var að tæma, voru nokkrar ljósmyndir teknar af Walsh í Englandi, og nokkrir skrítnir minjagripir frá stöðum, sem hann hafði heimsótt í frí- 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.