Heimilisritið - 01.04.1946, Page 44
Grunur hans var á rökur reist-
ur. Eitt augnablik var hann agn-
dofa. Þetta var bam Walsh!
Hann minntist þess, að hermað-
urinn hafði eitt sinn talað um
hjónaband sitt, þótt hann hefði
ekkert minnzt á bam. Morgan
hafði alls engan áhuga haft á
fortið mannsins, hafði engra
spurninga spurt, gengið út frá
því að hjónabandið hefði verið
skammvinnt, leiðinlegt, og því
minna sem talað væri um það,
því betra. Hann hafði ekki hugs-
að meira um málið, og Walsh
hafði aldrei framar minnzt á
það eða rætt um það í bréfum
sínum. I fyrsta sinn, frá því er
hann tók upp nafn Walsh, virt-
ist uppljóstrun yfirvofandi.
Drengurinn hafði bersýnilega
aldrei séð föður sinn, eða verið
of ungur til þess að muna eftir
honum. En ef móðirin birtist ...
Hann réyndi að láta á engu
bera. Það kom sér vel, að hann
var að fara úr borginni. Hann
gat losnað við snáðann mjög
auðveldlega.
„Hvað segirðu mér um móður
þína?“ spurði hann „Hvar er
hún?“
„Hún veiktist illa, og ... og
þeir fóru með hana í burtu“,
svaraði drengurinn, og varir
hans titruðu. „Og ... og síðan
kom frúin og sagði mér, að hún
væri dáin“.
Morgan dró andann léttara.
„Hvenær var það? Hvað er langt
síðan?“
„Ég man ekki, bara ... bara
frúin, hún tók mig með sér á
stað, þar sem var fullt af öðrum
litlum drengjum og stúlkum, og
ég varð að vera þama, hvort
sem ég vildi eða ekki“.
„Heimili, var það munaðar-
leysingjaheimili?“
„Stórt hús, stærra en þetta“,
svaraði drengurinn. „Mér leidd-
ist. Ég strauk í burtu eins fljótt
og ég gat og ... og kom þangað,
sem stóð skrifað á miðann. Ég
sagði ekki nokkrum lifandi
manni frá því“.
„Hvenær lét mamma þín þig
fá miðann, sem var skrifað á?“
„Þegar hún var veik. Hún
sagði, að kanski myndi sér ekki
batna og ... og hún gæti ekki
hugsað um mig framar, og ... og
ef 'henni batnaði ekki, skyldi ég
fara hingað, því að þú værir
pabbi minn og kanski, þú ...
þú —“ Drengurinn varð skjálf-
raddaður og fór að vatna mús-
um.
Morgan horfði á hann, og það
kom kökkur í hálsinn á honum.
Þetta var nú orðið ljósara.
Walsh hlaut aðhafa skrifað kon-
unni áður en hann fór úr borg-
inni. Hvers vegna og hve löngu
áður, var óvíst. Hvort sem hún
hafði svarað eða ekki hafði hún
42
HEIMILISRITIÐ