Heimilisritið - 01.04.1946, Page 47
skildu, vaknaði ég um ellefu-
leytið við þ'að, að Joan hringdi
og sagði : „Ruth, Parson hringdi
til min, til þess að vita, hvort
það væri satt, að Phil og ég
værum skilin. Hvernig hún hef-
ur komizt að því, að Phil fór í
kvöld alfarinn heim til foreldra
sinna, veit ég ekki, en það er
satt, svo að ég viðurkenndi það.
En ég get ekki sagt frá því,
hvers vegna við skildum. Þú
veizt það bezt sjálf, að það er
ekkert, sem ég get sagt 1 því
sambandi“. Þetta er líka hverju
orði sannara. Við þennan skiln-
að er ekkert yfimáttúrlegt. Það
er ekkert, sem Joan getur sagt,
vegna þess að það er ekki hægt
að skýra frá þeim leiðindum,
sem allt í einu grípur tvær
persónur, sem aldrei h'afa átt
skap saman.
Hins vegar vissu þau Phillip
ekkert um þessa hræðilegu stað-
reynd, þegar þau giftu sig, eftir
að hafa þekkzt í þrjár vikur. I
raun og veru vár sannleikurinn
sá, að þau vissu ekkert hvort
um annað, nema það, að þau
voru ákaflega . ástfangin hvort
af öðru.
Það var fyrir þrem árum, að
Joan hringdi til mín og sagði
mér, að þau væru gift. Eftir
nokkra klukkutíma var ég kom-
in til þeirra. Hver blindur blaða-
maður hefði getað séð, að Phil
Terry var bæði gáfaður, vel upp-
alinn og einlægur. Þótt hann
væri á fertugs aldri og hefði
ekki verið giftur fyrr, þá leit
hann út fyrir að vera sá maður,
sem myndi reynast góður eigin-
maður. Ég vonaði innilega, að
þetta væri sá góði félagi, sem
Joan hafði alltaf verið að leit'a
að. Ég vissi, að það, sem hún
þráði mest, var að eignast ró-
legt heimil. Hún vildi líka eign-
ast fleiri börn, þótt það kostaði
það, að þau þyrftu að taka að
sér uppeldisbarn. Og Phil sagði
einnig, að Joan væri sú kona,
sem hann hefði verið að leita að
alla sína ævi.
SAMT sem áður álít ég, að
þótt hjónaband þeirra væri
byggt á svo stuttri viðkynningu,
hefði það getað blessazt, ef Phil •
hefði náð betri árangri í starfi
sínu en raun bar vitni um. Phil
er ekki síður metorðagjam en
til dæmis Clark Gable eða Greg-
ory Peck, svo einhverjir séu
nefndir.
Þegar þau giftust, hafði Joan
samning við M-G-M, og Phil lék
einnig í nokkrum myndum hjá
því fyrirtæki. Þegar Joan fór
frá Metro, fór Phil þaðan líka
og réði sig hjá RKO félaginu.
Þar fékk hann eitt stórt hlut-
verk, sem hann var alveg gjör-
ómögulegur í. Síðan fór hann
HEIMILISRITIÐ
45