Heimilisritið - 01.04.1946, Page 51
Sögukom eftir
ELICK MOLL
SAUNDERS var að segja okk-
ur sögu, sem hann hafði heyrt í
Moskvu. Saunders er góður blaða-
maður, en notar heldur þunglama-
legan, bókmenntalegan frásagnar-
stíl. Eg er smeykur um, að ég
liafi ekki lilustað af sérlega mikilli
eftirtekt....
Við vorum hjá Tony Gregg —
Markham, Saunders, Blakely, ég
og nokkrir flugmenn, sem við
höfðum tekið með. Það var von
á góðum fréttum frá herstjórninni
og samið hafði verið um að láta
okkur alla 'fá þær símleiðis til
Tonys.
Þetta var um haustið 1942 og á
meðan við biðum gerðum við okk-
ur glaðan dag, því að ástæða var
til að fagna sigri síðustu daga. Þær
stundir koma í lífi allra ungra
manna er þá langar til að leggja
glasið frá sér á píanóið og sann-
prófa, hvort þeir taka háu tón-
ana hreina. Tony átti alveg sér-
staklega gott píanó. Ég tók eftir
því, að ungur, ljóshærður og lag-
legur flugmaður, sem mér fannst
hálft í hvoru koma mér kunnug-
lega fyrir sjónir, leit yfirlætislega
í áttina til þess. Kann að vera að
hann hafi bara verið feiminn.
Svo fór samt, að hann gekk að
píanóinu. Félagar hans fóru á eftir.
Þeir tóku að syngja, hver með sínu
nefi og án þess að skeyta um ná-
HEIMILISRITIÐ
49