Heimilisritið - 01.04.1946, Side 58

Heimilisritið - 01.04.1946, Side 58
sem ég sá festa upp víðjsvegar um aUa Briissel í gær: „í þorpinu Sa- vanthem nálægt Brussel hafa ver- ið framin skemmdarverk. Ég hef tekið fimmtíu gisla. Ennfremur mun klukkum verða hringt klukk- an átta síðdegis, þangað til öÖtu- vísi verður ákveðið, og skulu þá allir hverfa heim til sín. Öll kvik- myndaleikhús og aðrir skemmti- staðir skulu vera lokaðir unz ann- að verður tlikynnt“. Þetta er undirritað af þýzka her- stjóranum. Þetta eru góð tíðindi. Þau sýna, að Belgar veita viðnám. Nú er komið hádegi, og við érum að koma til Berlínar. Berlin, 20. ágiist 19J+0. Rafblístrurnar gullu fjörutíu og fimm sekúndum áður en ég átti að fara í útvarpið. Ég sat í út- varpssalnum hjá þulnum. (Ég sá nýlega, að hann hefur jafnan afrit af ræðu minni og hefur gætur á, að ég fari eftir handritinu). Við heyrðum hættumerkið, en sáum ek'ki ástæðu til að hætta verki okk- or. A eftir varð ég alveg hissa á óró manna í magnarasalnum, því að í Belgíu og Frakklandi gefa menn næturárásum ekki mikinn gaum. Berlín, 2J. ágúst 19J0. Nú viðurkenna Þjóðverjar al- varlega skemmdastarfsemi í Hol- landi. Christiansen, yfirforingi þýzka hersins þar, birtir aðvörun um, að ef slíku fer fram, verði hol- lenzk bæjarfélög að greiða fésektir og gislar verði teknir. Af aðvörun hershöfðingjans má ráða, hvers konar athæfi er um að ræða: „— -----ekki hirt um að tilkynna, að óvinaflugvélar lenda á hollenzkri grund“. Og svo bætir hann við: „Hollendingar, sem skjóta skjóls- húsi yfir hermenn óvinanna, skulu sæta harðri refsingu, jafnvel líf- láti“. Þjóðverjar sjmja fyrir, að þeir taki matvæli frá hernumdu þjóð- unum, en ég hef séð í höllensku blaði opinbera tilkynningu frá þýzkum yfirvöldum um það, að frá 15. maí til 31. júlí hafi 75.000 smá- lestir verið sendar frá Hollandi til Þýzkalands. Berlin, 26. ágúst 1910. Hér var fyrsta meiri háttar loft- árásin í þessari styrjöld í nótt. Berlínarbúar eru þrumulostnir. Þeir héldu, að þetta gæti ekki kom- ið fyrir. Göring hafði fullvissað þá um, að slíkt væri óhugsandi. Hann raupaði af því, að engin óvinaflug- vél kæmist í gegnum ytra og innra loftvarnabelti borgarinnar. Og Berlínarbúar eru einfaldir menn og auðtrúa. Þeir trúðu honum. Því urðu þeir svo flatir fyrir, þegar augu þeirra opnuðust. Enginn get- ur skilið þetta til fulls, sem sá ekki framan í þá. 56 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.