Heimilisritið - 01.04.1946, Blaðsíða 63
*
hjá Bretum að útvarpa því til
almennings í Þýzkalandi á hans
eigin máli, að meginjámbraut-
arstöð borgarinnar hafi verið
brennd, þar sem hún sendur ó-
sködduð.
Berlín, 12. sept. 1940.
Orðasveimur er hér um það,
að innrásin mikla í England sé
ákveðin aðfaranótt 15. septem-
ber. Þá er fullt tungl og stendur
vel á sjó í Ermarsundi.
Genf, 16. sept. 1940.
Þær fregnir berast nú yfir
frönsku landamærin skammt
héðan, að Þjóðverjar hafi freist-
að landgöngu í Bretlandi, en orð-
ið frá að hverfa og goldið hið
mesta afhroð. Trúi sögunni var-
lega.
Berlín, 19. sept. 1940.
Aldrei hafa blöðin verið eins
sárreið við Breta og nú, síðan
styrjöldin hófst. Þau segja, að
síðastliðna nótt hafi þeir varpað
sprengjum á fávitahæli Bodel-
schwings í Bethel í Vestur-
Þýzkalandi, drepið þar níu ung-
linga og sært tólf.
Blöðin eru dálkafull af rétt-
látri reiði gegn Bretum fyr-
ir það, að gjalda Þjóðverjum
líku líkt af ráðnum huga.
Ritskoðunin á útvarpsþáttum
okkar verður verri og harðari með
degi hverjum. Ég lenti í hörku-
rimmu við einn nazistaritvörðinn
í kvöld. Hann vildi ekki leyfa mér
að lesa blaðafyrirsagnirnar, sem ég
'tilfærði. Hann sagði, að þær gæfu
Bandaríkjamönnum „rangar hug-
myndir“, og ég væri of háðskur,
jafnvel í vali hlaðafyrirsagnanna.
Berlín, 20. september.
Eg er að velta fyrir mér, til
hvers ég er hér. Fyrstu átta mán-
uði ófriðarins var ritskoðunin
sæmilega sanngjörn, miklu sann-
gjarnari en sú, sem Grandin og
Sevareid urðu að þola í París. En
síðan styrjöldin tók að harðna og
eftir innrásina í Danmörku og
Noreg hefur hún hríðversnað. Und-
anfarna mánuði hef ég reynt að
beita brögðum eftir mætti. Eg hef
gefið til kynna greinarmun á stað-
reyndum og fyrirskipuðum ósann-
indum með tóni og raddbreyting-
um, með lengri þögnum en eðli-
legar eru, með því að nota amerísk-
an framburð, sem fæstir Þjóðverj-
ar skilja til fulls, ef þeir hafa lært
ensku í Englandi, með því að gera
mér mat úr einstökum orðum, orð-
tækjum, setningum og málsgrein-
um og hliðstæðum þeirra eftir
beztu getu. En nazistar gefa mér
gætur.
Framh. í næsta hefti.
HEIMILISRITIÐ
61