Heimilisritið - 01.05.1948, Page 12
biður barnið venjulega um mat
•á þriggja til fjögra tíma fresti,
stundum oftar.
En jafnhliða fæðunni barfn-
ast barnið innilegs sambands við
móðurina, einkum ef það er á
brjósti.
Dr. Renjamín M. Spock við
31ayo Clinic mælir með svokall-
aðri „rooming-in“-uppe!disað-
ferð við ungbörn á brjósti, og
hefur lagt rækt við hana í
sjúkrahúsum í Detroit, New
Haven og öðrum borgum. Yagga
barnsins er látin vera inni í
stofu móðurinnar, svo að ]iún
geti Iært að þekkja barnið, liahti
þess og „hræringai'“ —■ og fylg-
ist þannig með því sjálf, hvenær
það er svangt. Engir óviðkom-
andi fá að lcoma inn í stofuna,
einungis faðirinn stöku sinnum.
Dr. Spock er sammála flestum
læknum landsins í því, að annað
ár barnsins sé að líkindum erfið-
asta ár þess, mun erfiðara en hið
fyrsta, bæði fyrir móðurina og
afkvæmið. Það er á þessu ári
sem barnið lætur fyrst bera á
persónuleika sínum. Barn'ið fer
að fara eftir eigin vilja og smekk
varðandi matarræði, eftir því
sem það frekast getur, og eins
á flestum örðum sviðum. Eftir
því sem móðirin reynir meira að
koma krakkanum til að láta að
sínuin vilja, eftir því verður
barnið erfiðara og þrjózkara.
Barnið þarf líka hvað úr hverju
að fara að leika sér — og ráða
leikjum sínum.
Enda þótt barnið liafi ótak-
markaða tilhneigingu til að.fara
eftir eigin vilja og' hugdettum, og
gera það sem því er bannað að
gera, er það engu að síðu háð
góðvilja og vernd hinna full-
orðnu. „Eftir þvf sem barnið
verður fijálsara, vcrður það
sömuleiðis háðara móðurinni",
segir dr. Spoek.
Greind og hyggin móðir reyn-
ir að taka erfiðleikum annars
ársins með skynsemi, þolinmæði
og vilja til að.verða barninu fyr-
ir beztu — og sjálfri sér um leið.
. e >: ð i ii
RITHÖFURDAR ->
FÍLMST J ÖRNUR
Það virðist vera orðin tízka hjá
kvikmyndaleik'urum að skrifa baek-
ur. Joan Bennett hefur ritað bók
um fegrun og snyrtingu, sem reynd-
ar. hefur komið út hér á landi í ís-
lenzkri þýðingu; Mickey Rooney hef-
ur skrifað tvö kvikmyndaleikrit;
Errol Fiynn hefur skrifað einar tvær
bækur, 'og fleiri mætti nefna. Nú
síðast hefur George Sanders ritað
glæpasögu, sem þegar hefur verið
gefin út í mörgum útgáfum. ■—
Reyndar er þetta ekki alveg nýr sið-
ur, því að t. d. Mary Pickford, sem
er fyrsta og jafnframt ein fræg'asta
stjarna kvikmj-ndanna, er mjög vin-
sæll skáldsöguhöfundur.
10
HEIMILISRITIÐ