Heimilisritið - 01.05.1948, Page 28
mín átti 'ekki sameiginlcgt með
homun, því hún var alveg sér-
j staklega sparsöm og nýtin kona
j — og það átti eftir að koma
henni í koll siðaf’f Eg var ríkur,
en mágur minn fátækur, afþvíað
hann nennti ekki að vinna. Eg
vissi alltaf að hann var þorpari.
Eg get alveg sagt það Iireint
út núna, (sú gamla sa'kir varla
um skilnað héðanaf) að ég liélt
framhjá konunni minni og mág-
1 ur minn komst að því. Og það
sem verra var, hann hafði sann-
i anir fyrir því, þarsem hann hafði
á einn eða annan hátt komizt
yfir bréf frá mér til frillu minn-
ar. Þessvegna var það, að hann
kom til mín dag nokkurn og
spurði, hvort ég gæti ekki látið
sig fá peninga; hann væri nefni-
l lega orðinn blankur.
— Nei, það get ég ekki, svar-
aði ég.
En hann væri nú orðinn blank-
ur og síg vantaði nauðsynlega
peninga.
Það gæti ég ekkert gert. að,
hann mætti fara til skolláns fyr-
ir mér.
Jahá, svo ég segði það; það
væri nú vcrri sagan. Hann hefði
liáldið, að ég myndi reynast
hjálplegur, þarsem ég væri gnft-
ur systur hans. Já, það væri
verri sagan. En þannig væri nú
málið vaxið, að hann hefði fund-
ið smáhlut á vissum stað um
dnginn. Hvort mig langaði til að
sjá hann?
Nei, þökk. Mér væri alveg
sama um hluti, sem liann væri að
finna á yissUni stöðum. Hvort
hann væri viss tun að þcssi hlut-
ur væri heiðarlega fenginn?
— Já.
— Nú, þá skaltu bara hafa
hann í vasanum áfrarn, sagði ég.
— Það er bréf, sagði liann.
Bréf frá giftum manni til frillu
hans. Astarbréf.
— Jæja, það er ágætt, þá hef-
urðu .eitthvað að lesa.
— Eg er hræddur um að þú
kærir þig lítið um það. Það er
skriíað með þinni rithönd. Eg
ætti kaiinski að sýna systur
minni ]iað. Hahaha. Iía?
Hann fékk peningana, bæði þá
og alltaf siðan.
Þetta var orsökin til þess, að
ég fór að hata mág minn, en hann
iifði óhófslífi af mínum pening-
uni. Við vorum einsog köttur og
mús; —- ég músin.
Það var ekki fyrren eftir rúmt
ár, að mér datt snjallræðið í hug.
Hann vildi ekkert vinna, svo að
ekki dugði að útvega honum at-
vinnu. Þessvegna ámálgaði ég
það við liann, að hann færi lil
Ameríku og settist þar að.
Jú, það vildi hann gjarnan,
það er að segja ef ég léti hann
hafa peninga til þess.
Já, það skyldi ég gera ef hann
2t>
HEIMILISRITIÐ