Heimilisritið - 01.03.1951, Qupperneq 5
ÁST, DAUÐI, SJÁLFSFÓRN OG FLEIRA
Smásaga eftir William Saroyan, — Erlingur Halldórsson þýddi
TUMI Gardner, maðurinn í
kvikmyndinni, á léreftinu, þykk-
ur í herðum, brautarsmiður, for-
seti Sikagó- og Suðvesturdeild-
arinnar, hratar, gengur ekki, inn
í herbergið, og lokar dyrunum.
Maður veit, að hann ætlar að
fremja sjálsmorð, af því hann
hratar, og svo er þetta í kvik-
mynd, og alllangt síðan myndin
hófst, og eitthvað á að fara að
gerast, eitthvað mikið, stórfeng-
legt, eins og þeir segja í Hollí-
vúdd, sjálfsmorð eða koss.
Maður situr þarna í kvik-
myndahúsi og bíður eftir því,
sem maður veit, að á að gerast.
Veslings Tumi hefur rétt ný-
lega komizt að því, að afsprengi
seinni konunnar er getið af
uppkomnum syni hans og fyrri
konunnar. Fyrri kona Tuma
framdi sjálfsmorð, þegar hún
vissi, að Tumi var orðinn ástfang-
inn af ungu konunni, sem síðar
varð seinni konan hans. Unga
konan var dóttir forseta Santa-
klöru-járnbrautarfélagsins. Hún
var víur í Tuma svo faðir henn-
ar gæti áfram orðið formaður
Santaklöru, en Tumi hafði
keypt Santaklöru fyrir níu
miljónir dollara. Fyrri kona
Tuma kastaði sér svo fyrir
strætisvagn, þegar hún tók eftir
ást hans. Hún gerði það með
því að leika, bæði með andlit-
inu, augunum, vörunum og
göngulaginu. Þetta var ekkert
ægilegt, einungis skelfing í svip
bílstjórans, þegar hann var að
reyna að hemla bílinn, en svo
ekki meir. Það sást og heyrðist,
hvernig hjólið malaði hana, það
drap hana. Fólk heyrðist æpa,
eins og alltaf, þegar eitthvað
hroðalegt skeður, og nú fyrst
skildi maður, hvernig komið
vaf. Hið versta hafði skeð.
Sally, fyrri kona Tuma hafði
stigið upp til skapara síns.
Sally hitti Tuma, þegar hann
vann við járnbrautarviðgerðir.
Þá kenndi hún í litlum skóla uppi
í sveit. Einn dag sagði Tumi
henni, að hann kynni hvorki að
lesa, skrifa né reikna. Sally
kenndi Tuma að lesa, skrifa,
leggja saman, draga frá, marg-
falda og deila. Nokkru eftir að
þau giftust spurði hún hann
kvöld eitt, hvort hann ætlaði sér
að vinna alla tíð við járnbraut-
irnar. Sally spurði hann," hvort
hann hefði enga löngun til
frama, en Tumi sagðist una sér
HEIMILISRITIÐ
3