Heimilisritið - 01.03.1951, Side 6

Heimilisritið - 01.03.1951, Side 6
vel, það væri létt verk að vinna við járnbrautirnar, nú ættu þau heimili fyrir sig, og Tumi fann sér ekkert til vanbúnaðar. Þetta særði Sally, og nú fer hún að leika. Tumi skildi, að Sally mundi fyllast gleði, ef hann færi að verða metnaðargjarn. Við kvöldverðarborðið sagðist hann ætla að verða það. Undarlegur glampi kom í augu hans, andlit hans fékk á sig mikilfenglegan svip. Manni fannst hann þegar vera farinn að brjótast áfram í lífinu. Sally lét Tuma fara í skóla í Síkagó. Á meðan stundaði hún vinnu hans við járnbrautirnar til þess að hafa peninga upp í skólagjáldið, hún var mikil kona, hún var hetja. Eitt kvöld um vetur sést hún á gangi með fram brautarteinunum, berandi alls konar áhöld og smurnings- könnur, snjór og auðnin allt um kring. Það var dapurlegt. Það var líka til þess ætlast. Allt þetta lagði hún á sig vegna Tuma, svo hann gæti einhvern- tíma orðið mikill maður. Dag- inn, sem Tumi tilkynnti, að hann hefði verið gerður yfir- maður við smíði Missúríbrúar- innar, tilkynnti Sally, að hún væri með barni. Þá sagði Tumi, að nú gæti ekkert haldið aftur af sér. Nú hefði hann bæði Sally og barnið til að blása í sig kraft, og með því móti mundi hann ná 'upp í hæðirnar. Sally 'fæddi barnið, það var strákur, og meðan Tumi gekk að rúminu til hennar, heyrðist sinfóníutónlist, og þá vissi mað- ur, að stór stund var runnin upp í lífi Tuma. Tumi sást koma inn í hálflýsta stofuna, og hann kraup hjá konu sinni og synin- um, svo baðst hann fyrir. Hann sagði: Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn, til- komi þitt ríki, að eilífu, amen. Einhverjir heyrðust snýta sér í kvikmyndahúsinu. Það var Sally, sem gerði þetta úr Tuma. Hún tók hann frá brautarteinunum og beindi hon- um leiðina upp í forsetastólinn. Þá varð Tumi dauðástfanginn af yngri og fallegri konu, og þá kastaði Sally sér fyrir stræt- isvagninn. Sjálfsmorðið varð svo átakanlegt, af því hún hafði lagt svo mikið í sölurnar fyrir Tuma. Þetta var líka ástæðan fyrir því, að margir fengu tár í augu, þegar Sally fyrirfór sér. En sjálfsmorð Sallyar dró í engu úr ást Tuma til yngri kon- unnar, og stuttu síðar gekk hann að eiga stúlkuna, af því hann var hagsýnn maður í hví- vetria,—samt lét hann af allri hagsýnni, þegar Hollivúdd vildi svo vera láta. Sonur Tuma, ung- ur maður, nýrekinn úr skóla 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.