Heimilisritið - 01.03.1951, Page 20

Heimilisritið - 01.03.1951, Page 20
Hugsanaflutningur Tvö clœmt um bugsanaflutn- ing, tekin upf úr júníhefti Strand Magazine, /945. v___________________________________J Landslagsmynd Ég hafði verið fluttur frá Frakklandi í sjúkrahús í Abcrdcen. Eftir tvær vik- ur var mér leyft að sitja uppi í rúminu. Hjúkrunarkona, sem stundaði ntig, en sem ég þekkti ekkcrt, bað mig unt að setja eitthvað til minningar um mig í lausablaðabók, sem hún notaði einkum undir eiginhandarsöfnun. Ég kvaðst skyldi mála eitthvað í bók- ina, ef hún gæti lánað mér liti. Hún kom með litastokk og yfirgaf mig svo um tíma. Ég sat nú stundarkorn og var að velta því fyrir mér, hvað ég ætti að mála, þegar landslagsmynd birtist allt í einu í huga mér eins og litmyiul á blaði. Ég vissi að landslagið var frá Loch Lubnaig, og hafði ég séð það einu sinni fyrir sex ánim. Ég teiknaði mynd af þessu í bókina. Þegar stúlkan kom aftur og sá lit- myndina, sagði hún undrandk ,,Hvem- ig stóð á því að þér teiknuðuð mynd af þessum stað?“ Ég svaraði: „Nú, kannist þér við hann?“ ,,Já,“ sagði hún, „ég held nú það. Þetta er útsýnið frá æskuheimili mínu yfir Loch Lubnaig. Ég er fædd og upp- alin þar.“ Ég hugsa að ég hafi fengið myndina úr huga hennar. (Majór H. /. Wilson, Gl. Barracks, Midlothian). Skemmtun fyrir gestina I fámennu jólahófi, þar sem ýmsir algengir leikir voru til skemmtunar, bauðst einn gestanna til þess að reyna huglesturshæfileika sína. Við áttum að einbeita huganum að cinhverjum á- -kveðnum hlut í hcrberginu, og hann átti síðan að koma með bundið fyrir augun og finna aðstoðarlaust út, hvaða hlut við hefðum valið. Bundið var fyrir augun á níanninum og honunr snúið í tvo hringi á miðju gólfi, svo að hann varð alveg áttavillt- ur. Við biðurn þegjandi eftir því að hann veldi þann hlut, sem við einbeitt- um öll huganum að. Loksins gekk hann að hlutnum, sem var eitt af mörgum jólakortum, er þarna voru. Hann hand- fjatlaði það svolitla stund, en gafst svo upp. Forvitni mín var vöknuð, því að hér gat naumast verið um tilviljun eina að ræða, svo að ég bað um að fá að reyna. Það var faiið með mig eins og hann. Ég sá ekki ljósglætu og hvíldi hugann svo sem mér var kostur. Smátt og smátt var eins og mér væri vísað til vegar, þar til eftir fáeinar mínútur að hönd mín greip unt epli. Ég vissi að ég hafði val- ið hinn rétta hlut, enda vantaði ekki undrunar- og fagnaðarlæti áhorfend- anna. Ég hef gert þessa tilraun oft síðan og heppnast oftar en mér hefur mis- heppnazt. En sumt fólk er ekki sam- taka, og þá er eðlilegt að hugaraflið leiðbeini ekki vel, enda halda margir að þetta sé venjuleg brella. (K. B. fones, Carby, Northants). 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.