Heimilisritið - 01.03.1951, Side 32
VILL FÁ FALLEGT HÁR
Sp.: Kæra Eva mín. Hvað á ég að
gera til að fá failegt hár? Ég er hrædd-
ur um að ég sé að verða sköllóttur.
/• /•
«
Sv.:Fyrst og fremst skaltu sápuþvo
hárið vikulega og nudda hársvörðinn
daglega. Ennfremur er nauðsynlegt að
bursta hárið á hverjum degi. Hundrað
strokur á dag er góð tala. Ef hárið er
þurrt skaltu nudda hárfeiti í hársvörð-
inn, en ef það er fítugt skaltu nota hár-
spíritus. Sértu að missa hárið, er ráðleg-
ast að leita til húðsjúkdómalæknis. Ef
til vill getur hann verið þér hjálplegur.
HÚN ROÐNAR
Sp.: Elsku Eva. Þakka þér kærlega
fyrir allan fróðleikinn, sem þú færir
mér og öðrum í dálkunum þínum. En
nú langar mig til að biðja þig um ráð.
Ég roðna svo skelfilega, þegar sízt
skyldi. Mér þykir þetta svo leiðinlegt,
°g trcysti þér til að vera mér nú ráðholl.
G. J.
Sv.: Reyndu að taka inn kalktöflur
eða taugaróandi lyf. Annars cr rétt af
þér að tala við lækni um þetta.
GULAR TENNUR
Sp.: Hvernig á ég að fara að til að
fá hvítar tennur? Ég bursta þær dag-
lega, en þær eru samt heiðgular. Getur
það stafað af reykingum? Og ef svo er,
finnast þá nokkur ráð til að hvítta þær?
A.
Sv.: Já, miklar reykingar gera tenn-
urnar gular. En hér er ráð til að afmá
tóbaksguluna: Burstaðu tenurnar upp úr
3% vatnssýrlingsupplausn (brintover-
ilte), blanda eina teskeið af því í glas
af vatni. Einnig geturðu búið til tann-
duft, sem ágætt er að nota. Uppskrift-
in er þessi: 35 g krítarduft, 15 g kaolin,
7 g zinkhvítt, 7 g vikurduft ( (pimpst-
senspulver) og 7 g beinamjöl.
ÞÓFNUÐ ULLARFÖT
Sp.: Kæra Eva. Ég er svo óheppin, að
það þófnuðu hjá mér prjónuð ullarföt í
síðasta þvotti. Geturðu hjálpað?
Sigfríður.
Sv.: Þetta getur Iagast, ef þú lætur
tæpan bolla af ediki út í þvottavatnið.
Nuddaðu fötin ekki, heldur skaltu
kreista þau milli fcngranna. Þau verða
líka bragglegri ef þú Iætur svolítinn
salmíaksspíritus út í sápuvatnið. Þeg-
ar þú þurrkar prjónafatnað, skaltu vefja
hann inn í dagblaðapappír en hengja
hann helzt ekki upp.
SVÖR TIL ÝMSRA
Til „Lindn': — Ef pilturinn hefur
einhverra hluta vegna ekki tjáð þér ást
sína ennþá, get ég því miður ekki haft
nein áhrif á hann í þá átt. Kannske er
hann feiminn við að segja það. Ef til
vill ættir þú ekki heldur sjálf að leyna
hann tilfinmngum þínum. Gríptu næsta
góða tækifærið til að gefa honum ást
þína í skyn, eða láta hann finna, að
þú reiknar með áframhaldandi sambúð
30
HEIMILISRITIÐ