Heimilisritið - 01.03.1951, Side 34
Hún tryggði hann
Smásaga eftir Natalie Shipman
HUGH Barton rétti úr sér og
horfði beint yfir skrifborðið, á
ungu stúlkuna, sem ritarinn
hans hafði vísað inn til hans.
„Það er ekki af því að ég vilji
vera ruddalegur,“ sagði hann
brosandi, „en það getur þó ekki
verið raunveruleiki, að þér séuð
með umboð fyrir vátrygginga-
félag?“
„Jú!“ svaraði unga stúlkan
og leit alvörugefin í augu hans.
„Hvað er það þá, sem yður
er á höndum? Tryggja mig?“
Hún kinkaði kolli.
„Tryggja mig? Gegn hverju?“
„Yfirleitt gegn öllu!“ var
svarið. „Við bjóðum sérstaklega
hagkvæm kjör á vátryggingum,
sem tryggja yður samtímis gegn
þjófnaði, eldsvoða, slysum og
dauða . . . en auk þess getum
við boðið eins konar líftrygg-
ingu, sem færir yður 5000 doll-
ara, þegar þér verðið fimmtugur,
gegn 250 dollara iðgjaldi!"
„Hvernig komið þér öllum
þessum tölum fyrir í höfðinu?“
„Tölurnar grundvallast á út-
reikningum, sem tryggingafræð-
ingar félagsins hafa gert!“ svar-
aði hún þurrlega. „Þetta fyrir-
komulag sameinar hagræðið við
að vera tryggðir gegn fyrirvara-
lausum slysum og möguleikann
til dálaglegrar peningaupphæð-
ar, þegar þér fyllið fimmta tug-
inn!“
„Ó, Guð almáttugur!" stundi
hann og greip um höfuðið. ,.Út-
reikningar . . . stærðfræðifor-
múlur! Skyndileg slys og dá-
laglegar peningaupphæðir! Hví-
líkt samsafn leiðinlegra orða!
Ég get bara ekki stillt mig um
að láta yður vita, að þótt ekki
væri nema orðið trygging, kem-
ur það mér til þess að sjá rautt
. . . og allt til þessa hafa öll
félögin gert árangurslausar á-
rásir á mig!“
„Já, er það ekki ótrúlegt!“
mælti Lettie, og nú var roðinn
í kinnum hennar horfinn fyrir
hinni venjulegu, þóttafullu ró-
semi hennar. „Hér sitjið þér,
efnilegasti, ungi málaflutnings-
maður borgarinnar, greindur og
duglegur, með möguleikum til
þess að verða forstjóri fyrir
32
HEIMILISRITIÐ