Heimilisritið - 01.03.1951, Síða 45
Svikakvendið
f--------------------"N
Grein um einstaklega ófyrirleitna
fjárglcefrakonu, þýdd úr ,,Coronet ”
v____________________J
VETRARKVÖLD nokkurt ár-
ið 1904, stóð yfir íburðarmikið
kvöldverðarboð í einu af fín-
ustu hótelum New York-borgar.
Eins og af tilviljun litu gestirn-
ir við og við að háborðinu, eink-
um til hinnar fögru húsmóður,
sem með hinum tindrandi per-
sónuleika sínum gnæfði yfir alla
aðra í salnum. Þjónarnir hvísl-
uðust á um það, að hún væri
hin vellauðuga frú Cassie Chad-
wick frá Cleveland. Hún hafði
komið til Nev York í einka-
járnbrautarvagni í fylgd með
sex þjónum og hóp af kunn-
ingjum, eingöngu til að vera
viðstödd sýningu á óperunni
Parsifal.
Hótelstjórinn var mjög afsak-
andi, þegar hann truflaði sam-
kvæmið til þess að tilkynna,
að tveir menn óskuðu að fá að
tala við frú Chadwick. Um-
kringd af vinum sínum horfði
frú Chadwick spyrjandi á gest-
ina tvo.
„Við erum með heimild til
þess að handtaka yður vegna
svika, falsana og brota á banka-
lögunum," sögðu þeir við hana.
„Herrar mínir,“ sagði hin
yndislega, litla kona lágt, „þetta
er hinn mesti misskilningur.“
Meðlimir samkvæmisins urðu
tortryggnir og síðan sárreiðir
yfir slíkri heimsku. Allir
þekktu frú Chadwich — beztu,
prúðustu og elskulegustu konu,
sem nokkur gat ímyndað sér.
Menn minntust þess, þegar hún
fyrir sjö árum giftist Seroy S.
ChadMúck, auðugum tannlækni
frá Cleveland. í fyrstu höfðu
þeir verið svolítið gramir, vegna
þess að hinn auðugi læknir
hafði gifzt stúlku úr annarri
borg, en þegar þeir komu í
heimsókn í hið íburðarmikla
hús fjölskyldunnar við Euclid
Avenue, urðu þeir blíðari á
manninn.
Cassie, sem var kona um fert-
ugt, var svo falleg, yndisleg og
HEIMILISRITIÐ
43