Heimilisritið - 01.03.1951, Side 50

Heimilisritið - 01.03.1951, Side 50
Ur einu í annað Unga frtíin: — Ó — nú sviðnar steikin, og ég má ekki taka bana úr ofninum fyrr en eftir tiu mínútur. # Of þrönga flókahatta má víkka með því að halda þcim yfir vatnsgufu og teygja þá gætilega. Gufan linar flók- ann. # Ungur eiginmaður: — Það hlýtur að ' vera kominn fótaferðartími. Konan: — Nú, af hverju? Maðurinn: — Sá litli cr sofnaður. • # Gúmmíkápur er gott að hreinsa upp úr salmíaksvatni, en varast þarf að væta þxr mjög mikið, því að þá gctur dottið upp úr þeim. # Niagarafossinn nagar af hrún sinni um f>að bil eitt fet á ári. A þennan hátt hefur hann sorfið sér djúp gljúfur, alla leið frá Queenstown, eða sjö mtlur þaðan sem fossbrúnin er nú. Eftir þessu að dtema hefur hann verið 35000 ár að grafa gljúfrin. # Við viturn ekki miljónasta part úr einum af hundraði um nokkurn skapað- an hlut. — George W. Alger. # — Það eru vissir hlutir í lífi okkar, sem maður verður að loka augunum fyrir. — Já, til dcemis sápa! # Blóðblettum má auðveldlega ná úr lérefti með því að láta það liggja í bleyti í mjólk þar til blctturinn er uppleystur. Skipta má um mjólk ef þörf krefur. Hélu af gluggarúðu er bezt að strjúka burt með snarpheitu vatni og nudda hana síðan með dúk, scm bleyttur hef- ur verið í brennsluspíritus. Á veturna er gott að blanda 5 gr af glyserini sam- an við 100 gr af spírinis og nudda rúð- urnar upp úr því að innanverðu. # Þórður (við Karl): — Geturðu ekki skilað mér aftur bókinni, sem ég lánaði þér fyrir viku? Karl: — Þvi miður, ég vár rétt áðan að lána honum Sigga hana. Þarftit að nota hana riúna? Þórður: — Nci, ekki ég. En Einar, sem lánaði mér hana, kom t gær og sagði, að Arni þyrfti að skila honum Bjarna henni. Hann á nefnilega bók- ina. # Það má aldrei þurrka blautar loðkáp- ur við ofnhita, því þá harðnar leðrið, og hárin verða ljót. Það á að bursta þær gætilega og hcngja þær svo til þerris. Daginn eftir eni þær barðar laus- lega með priki og hárin kernbd, fyrst eins og liggur í þeim en síðan öfugt. Þá verður feldurinn eins og nýr. # Læknirinn: — Eg er alls ekki hrif- inn af þvi, hvernig þér litið út. Sjúklingurinn: — Eg ætla mér held- ur ekki að taka þátt í neinni fegurðar- samkeppni. * Til þess að forðast svitabletti í karl- mannshöttum, er gott að láta dagblaða- pappír milli svitabandsins og flókans. Það þarf að skipta um pappír öðru hverju. 48 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.