Heimilisritið - 01.03.1951, Page 59

Heimilisritið - 01.03.1951, Page 59
Eftir stutta stund hafði Joan enga hugmynd um, í hvaða átt þær fóru. Hún heyrði ckki einu sinni brimhljóð. En eftir að þær höfðu brotizt áfram enn um stund, komu þær af tilviljun í rjóð- ur, þar sem jarðvegurinn virtist sléttur eins og tennisvöllur. Loftið var þar næstum tært, þótt rakinn gufaði upp af votri jörðinni. Hér fór Joan úr öllum fötunum og hengdi þau upp í tré til þerris. Rena hafði ekki eins mikið fyrir. Hún var aðeins í stuttu baðmullarpilsi og þurrk- aði sig á þann einfalda hátt að nudda hörundið með höndunum. Hún var enn mjög hrædd, og var sífellt að skima í kringum sig. „Ég mikið hrædd“, sagði hún, og það gnötruðu í henni tennurnar, þegar Joan spurði hana, að hverju hún væri að gá. „Margir svartir menn hér í nágrenninu. Löng leið til mikli, hvíti maður. Við fara aftur, fljótt, annars vondir, svartir menn taka okkur“. Joan hristi höfuðið þrákelkmslega. Hún vildi ekki láta hræðast af hjátrú hinna innfæddu og láta reka sig aftur til Hilary Sterling. „Ég myndi ckki fara afmr til hans, þó að ég rataði", sagði hún. „Ég vil heldur deyja hér í frumskóginum en að snúa við. Þú getur farið heim afmr, ef þú vilt, en ég efast um að þú ratir gegnum skóginn". Henni var alvara með það sem hún sagði. Hún var ákveðin í að deyja held- tir í frumskóginum en að snúa afmr til Hilarys. Og hún varð með sjálfri sér að játa, að líkurnar fyrir því, að hún týndi lífinu í fmmskóginum, vom yf- irgnæfandi miklar. Eini vonarneisti hennai- var sá, að komast niður að sjó og reyna að halda í sér lífinu þar, þang- að til hún sæi skip, og gefa því þá mcrki. Hilary hafði talað um að verzl- unarskipið væri væntanlegt einhvern næstu daga. Hún fór í huganum yfir þær sögur, sem hún hafði lesið og heyrt um skipbrotsmenn á eyðieyjum og til- raunir þeirra til að vekja adiygli skipa er framhjá sigldu. Hún reyndi að muna eftir einni eða annarri aðferð, sem hún gæti notað til að vekja á sér athygli skipa. „Við skulum. reyna að komast niður að sjó, Rena“, sagði Joan, er hún hafði klæðst aftur þurmm en óhreinum föt- unum. „Þar getum við þó að minnsta kosti verið í friði fyrir bannsettum skor- dýrunum11. ,Ég vera alltof mikið hrædd“, sagði Rena kjökrandi. „Ef þú ekki koma aft- ur, mikli maður, húsbóndinn, drepa mig og drekka blóð mitt, eða svartir menn drepa þig og éta þig“. „Farðu þá ein, ef þú vilt það heldur!" sagði Joan ergileg, „Mér er alveg sama hvað um mig verður. Ég vil bara í burtu héðan“. Hún hlustaði með athygli og fannst hún heyra brimhljóð, en jafnskjótt og hún hafði yfirgefið rjóðrið, lagðist hin þreytandi kyrrð afmr yfir frumskóg- inn. Rena elti hana kjökrandi, eins og sært dýr. Allt í cinu grcip hún í hand- legg Joan og hvíslaði dauðskelkuð, að hún hefði séð citthvað hreyfa sig í nágrenninu. Joan skammaði hana óþolinmóð, en smitaðist þó af hræðslu hennar og virt- ist sem hún sæi eitthvað dökkt hreyfast milli trjástofnanna skammt frá. HEIMILISRITIÐ 57

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.