Heimilisritið - 01.05.1951, Page 20
Sjö tré og Ijósastaur
---------------------------------V
Þessi sagd blaut fyrstu verðlaun
í smásagnakeppni, sem ameríska
tímaritiS „Seventeen“ efndi lil
meðal unglinga. Höfundurinn er
/5 ára stúlka og heitir Dorothea
Fruchter.
,____________:___________________J
HANN VAR hissa á að sjá
stúlkuna, sem gekk á undan hon-
um um kvöld. Það rigndi, og
það var kalt regn. Hann hafði
haldið, að hann myndi verða
einn þarna uppi á hæðinni.
Iíann liafði langað til að vera
einn. Þá hafði hann séð stúlk-
una, álúta og berhöfðaða, rangla
hægt áfram í rigningunni.
Svo hann hafði greikkað spor-
ið, upp stíginn, í regninu. Og
þegar hann nálgaðist stúlkuna,
hægði hann á sér unz hann gekk
við hlið hennar í takt, sein var
taktur einmana fólks, sem ekki
er að ganga neitt ákveðið. Stúlk-
an sá, eða fann, að hann var
þarna, en hún hélt áfram að
stara niður á vota gangstéttina.
Hann sagði: „Fara nokkuð
sérstakt?“
„Nei. Ég er bara að ganga“.
„Hefurðu nokkuð á móti því
að ég gangi með þér?“
Ég segi: „Þetta er frjálst
land“. Nei. Það segi ég ekki.
Jæja þá, hvað segir maður?
Hann segir: „Hefurðu á móti?“
Nú, hefurðu það? Ég hef ekk-
ert á móti því. Jæja, segð'u það
þá. Hvernig? Hvernig segirðu:
„Ég er einmana“? Segðu: „Nei,
ég hef ekkert á móti því“.
Allt í la-gi, ég geri það. Jæja,
segðu það þá.
„Nei, ég hef ekkert á móti
því“.
Röddin var of há. Þú getur
ekki ráðið við hana, þegar þú
hefur hlustað svona lengi á regn-
ið. Jæja þá, ofurlítið lægra næst.
Einni áttund.
Hann sagði: „Ég myndi bjóða
þér regnhlífina mín, ef ég hefð'i
hana“.
„Ég er fegin að þú hefur enga.
Mér fellur ekki við þær“.
„Þykir þér gott að ganga
svona í rigningu?“
„Nei, mér þykir það ekki
gott“.
18
HEIMILISRITIÐ