Heimilisritið - 01.05.1951, Blaðsíða 51
Glcspir ágerast
Greinarlzorn eftir Ferdinand Tuohy
Auðugt ímyndunarafl er
nýtízku leynivopn glæpa-
manna.
ÞETR SEM semja yfirlit eftir
alþjóðalögregluskýrslum, hafa
orðið varir við nýja stefnu með-
al afbrotamanna. Skrár þeirra
sýna, að ræningjar, þjófar, fjár-
dráttarmenri, svikarar, eitur-
lyfjasalar og falsarar — stór
hluti fullorðinna afbrotamanna
— sýna svo auð'ugt ímyndunar-
afl, að frægustu söguhetjur
glæpamannanna gætu verið
hreyknar af.
Sú ályktun virðist liggja beint
við, að bágindi og siðspilling
meðal millistétta og launamanna
liafi lagt fylkingum afbrota-
mannanna til nýja vitsmuni,
sem notaðir eru til glæpaverka.
Enginn venjulegur þjófur
hefði fundið upp á að ræna úr
Pasteurstofnuninni í París.
Þjófarnir höfðu á brott með sér
skjöl, sem höfðu inni að' halda
leyndardóma vngingarblóð-
vatns, sem rússneski læknirinn
Bardack hafði rannsakað árum
saman. Skömmu síðar kom
„elexír“, svipaður að samsetn-
ingu, á markaðinn.
Þjófriaður á sokknum tundur-
spilli i höfninni í Napoli vekur
strax grun um svartamarkaðs-
sölu, og það viðurkenndu líka
hinir fjórir ákærðu fyrir réttin-
um; þeir voru kafarar og höfðu
farið' niður á kvöldin og nótt-
unni í langan tíma og stolið
tundurspillinum smátt og smátt.
Það komst ekki upp um þá fvrr
en þeir höfðu svo til lokið verk-
inu. „Ivafarar stela tundurspilli“,
var stór fyrirsögn í blöðunum á
þeim tíma.
Snúum okkur frá skipum til
músa. Maður skyldi ekki halda,
að það væri mikið upp úr mús-
um að hafa. Og þó er það svo.
Það fer allt eftir kynferðinu.
Kvenmýs eru tuttugu sinnum
meira virði en karlmýs, þegar
þær eru aldar upp til afnota við
líffræðilegar og læknisfræðilegar
HEIMILISRITIÐ
49