Heimilisritið - 01.06.1951, Síða 6
mína, rétti ég henni höndina.
„Sverrir Ólafsson.“
„Miriam.“
„Það er ekki íslenzkt nafn,“
sagði ég hikandi. Ég vissi ekki
hvernig ég átti að brjóta upp á
samtali við þesSa stúlku, sem
ég átti sízt af öllu von á að
hitta hér.
Hún dreypti aftur á glasinu
— öllu meira en áður.
„Ég er kölluð það héma.“
„En þitt rétta nafn —?“
Snöggvast kom hörkusvipur
á fallegt andlit hennar, svo
sagði hún hægt: „Ég kæri mig
ekki um að nota það hér.“ Hún
kinkaði kolli í áttina til hljóm-
sveitarinnar. „Ég syng og dansa
hérna —. Þú skilur — ég hef
ofurlitla sómatilfinningu ennþá,
og ég vil eiga nafn mitt óflekk-
að. Það er oft það eina sem
maður á.“
Ég kinkaði kolli, og drakk út
úr glasinu.
„Segðu mér — hvernig stend-
ur á að þú ert hér?“
Hún lék sér að munnstykk-
inu. „Hvernig? Tilviljun — að-
eins tilviljun,“ sagði hún kæru-
leysislega, um leið og hún gaf
þjóninum bendingu um að fylla
glas sitt að nýju. „Annars er
ég orðin þreytt á Spáni.“
„Af hverju reynirðu þá ekki
að komast heim?“
„Heim?“ Augnarráð hennar
var fjarrænt. „Ég veit ekki
hvort það er nokkuð „heim“ til
fyrir mig lengur. Ég er hluti af
þessu umhverfi, nú orðið. Það
er of seint að snúa við úr því
sem komið er.“
Ég tók um granna hönd henn-
ar, sem lá á borðinu.
„Það er aldrei of seint, Miri-
am.“
„Fyrir mig. ... Þú sérð hvern-
ig ég er orðin. ...“
Dökkhærður, hörkulegur
maður kom að borðinu og sagði
eitthvað á spænsku, og Miriam
kinkaði þreytulega kolli.
„Þú afsakar augnablik — ef
ég má þá koma aftur.“
„Auðvitað.“
Hún stóð upp og greip glasið
um leið, drakk út úr því í ein-
um teyg og gekk síðan að
hljómsveitarpallinum.
Þegar hún dansaði framhjá
litlu síðar og söng hæglátt,
spánskt danslag, voru augun
hálflukt, og bros hennar og
hreyfingar eggjandi —.
Ég dreypti á glasinu mínu,
fékk mér nýja sígarettu, og
bauð henni að reykja þegar hún
kom aftur. Andlit hennar var
þreytulegt, og þjónn fyllti glas-
ið eftir merki hennar.
„Svona er það alltaf —, alltaf
það sama.“ Hún drakk úr hálfu
glasinu í einu, og sogaði djúpt
að sér sígarettureykinn.
4
HEIMILISRITIÐ