Heimilisritið - 01.06.1951, Page 7

Heimilisritið - 01.06.1951, Page 7
„Viltu dansa við mig, Mir- iam?“ »Já.“ Ég lyfti glasinu. „Skál.“ „Skál, Sverrir.” Um leið og ég stóð á fætur, veitti ég því athygli að hún hafði drukkið glasið í botn. Við dönsuðum af stað. Ég fann grannan, ögrandi líkama hennar í örmum mínum, og leit framan í hana. Fallegt andlit, sem var mikið málað og farið að fá merki þess lífernis er hún lifði. Hún leit upp og augu okk- ar mættust. Augu hennar voru fallega blá, en sljóvguð af vín- inu. Hún brosti, og ég þrýsti henni þéttar að mér. „Eigum við að koma út?“ Hún kinkaði kolli, og við gengum að borðinu. Ég settist og beið, meðan hún talaði við dökkhærða manninn, Svo kom hún aftur, og hafði fleygt svartri loðkápu yfir axlirnar, og ég sá þegar, að skinnið var ekta. VIÐ GENGUM út í kalda, kyrra nóttina, og það fór ofur- lítill hrollur um hana. Ég stakk hendinni undir arm hennar. „Viltu koma um borð?“ „Nei, Sverrir. Þú skilur, að ég vil síður fara um borð í ís- lenzkt skip. Auk þess á ég heima skammt héðan.“ Litlu síðar staðnæmdumst við fyrir framan stórt hús. Hún opnaði með lykli, og við geng- um inn í íbúð hennar. Ég var undrandi yfir því hve vel hún bjó. Húsgögnin voru smekkleg og augsýnilega mjög vönduð, en það voru hvergi myndir eða neitt annað, sem gat gefið í skyn hver hún væri. Hún gekk inn í svefnherberg- ið, og kom augnabliki síðar, í- klædd hvítum morgunslopp, með flösku og tvö glös. Hún hellti 1 glösin og settist við hlið mína í sófann. „Skál, Sverrir.“ „Skál, Miriam." Ég dreypti á glasinu. Það var sama tegundin og hún hafði drukkið fyrr um kveldið, og bragðið var sætt en rammt. „Þú ert hissa á því, hvað ég hef það gott,“ sagði hún og kveikti sér í sígarettu. Hún blés reyknum frá sér og horfði á mynd sína í stórum spegli. „Það er ekki vandi á meðan —.“ Hún hikaði skyndilega — og bætti svo snöggt við: „Á meðan mað- ur hefur fallegan vöxt, og and- litið er sæmilegt." Hún lét glas- ið á borð við hlið sér, og um leið féll sloppurinn út af ann- arri öxl hennar. Húð hennar var hvít og mjúk. „Miriam.“ Ég laut fram, og varir okk- HEIMILISRITIÐ 5

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.