Heimilisritið - 01.06.1951, Page 10

Heimilisritið - 01.06.1951, Page 10
með barni.“ Ásbjörn þagnaði snöggvast, og kveikti sér í síg- arettu. Þegar hann hélt áfram, var rödd hans lág, qg mér virt- ist hann tæplega vita af mér lengur. „Ég veit ekki hvað að mér gekk, en ég gat ekki afborið að vita ekki hið sanna um, hvor okkar væri faðir að baminu. Ég taldi hana á að fara til læknis, sem — já, þú veizt hvað ég á við. Við ákváðum að láta sem ekkert hefði skeð, en upp úr þessu veiktist hún, og Viggó komst að hinu sanna. Okkur lenti saman og hann ásakaði mig fyrir ræfilshátt, og ég barði hann niður. Síðan fór ég til hennar — ásakaði hana fyrir að hafa sagt frá, og þá var það að hún svaraði því til, hvort ég væri þá ekki sá maður að geta staðið fyrir gerðum mínum —, og ég sló hana utanundir. Ég held að allt mitt líf muni ég ekki gleyma, hvernig hún leit á mig þá. Það er sú dýpsta ör- vænting, sem ég hef séð 1 nokkrum augum. En ég vissi ekki þá, hvað ég var að gera. Hún tók af sér hringinn og fór þegjandi og hljóðlaust, og fyrst nokkrum dögum síðar, er ég sá hana ölvaða á miður heppilegum stað, skildist mér hve illa ég hafði komið fram. Og ég fann líka að ég elskaði hana ennþá. Daginn eftir fór ég heim til hennar. Þá var hún farin. Hún hafði farið til útlanda með þýzk- um hljómlistarmanni. Síðar frétti ég í Hamborg, að þau hefðu gifzt, en skilið eftir stutta sambúð, vegna þess hvað hún drakk mikið. Ég skrifaði henni og bað hana að koma til mín aftur, en fékk aðeins stutt svar: Það er of seint að snúa við —. Nú veit ég aðeins, að hún er einhversstaðar fyrir sunnan Biskaya —.“ Hann þagnaði, og ósjálfrátt krepptist hönd mín um nistið, sem lá í vasa mínum. Hann leit snöggt á mig og sagði svo kæru- leysislega: „Jæja, en við skulum sleppa þessu — það var ekki falleg saga. Láttu mig nú heyra ævin- týrið þitt.“ Ég leit beint í augu hans um leið og ég rétti honum nistið. „Þú hefur það hérna, Ás- björn.“ Hann hrökk við. „Hvar fékkstu þetta?“ „Hjá henni — núna. Hún bað mig að koma því til rétts eig- anda, ef ég uppgötvaði síðar hver hún væri.“ Við horfðum báðir á mynd- irnar 1 nistinu. Önnur var eins og sú, sem Ásbjörn átti, bara minni — hin var augnabliks- 8 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.