Heimilisritið - 01.06.1951, Page 16

Heimilisritið - 01.06.1951, Page 16
í sköpunarverkinu. Stundum hafa foreldrar á- hyggjur af því, að barnið spyr aldrei um neitt varðandi kyn- ferðismál. Þá má ganga að því vísu, að einhver annar hefur sagt barninu, að ekki væri orð hafandi á slíkum málum. Barn- ið skortir ekki forvitni, heldur hugrekki til að spyrja foreldra sína. Þá er það foreldranna að bæta úr. En varast skyldi alla fræðslufyrirlestra. Bezta aðferðin er að minnast á málið við fyrsta tækifæri: „Veiztu, að það er fætt nýtt barn í næsta húsi?“ eða „Viss- irðu, að kisa ætlaði að fara að eiga kettlinga?“ Svona nokkuð getur gengið sem byrjun, síðan koma spurningarnar af sjálfu sér. Þegar svo er komið, er rétt að leiðrétta misskilning, sem safnazt hefur fyrir. Foreldrið spyr: „Hvernig heldur þú, að kettlingar fæðist?“ Eða: „Hvað hélztu, þegar þú varst yngri?“ Astæðan til þessa er augljós. Sex ára barn viðurkennir fús- lega, að fimm ára vesalingur geri sér heldur bjánalegar hug- myridir. Með því að segja, hvað hann hélt áður, forðar hann sér frá vandræðum, ef hugmyndir hans skyldu vera fjarri lagi. Hann þarf ekki að játa, að hann trúi enn þessum bjánalegu sög- um. Þegar búið er að brjóta ís- inn, heldur barnið áfram að koma til foreldra sinna með þær spurningar, sem fyrir koma. Ættu feð'ur að svara spurn- ingum drengja, og mæður spurn- ingum dætra? Hvort foreldrið sem spurt er, ætti að svara. Og það er bezt, að spurningarnar séu lagðar fyrir þau í samein- - ingu. Það gefur barninu þá hug- mynd, að kynferðismál séu eðli- legt umræðuefni, og kemur í veg fyrir þá skoðun, að nokkuð sé óhreint í sambandi föð'ur og móður. Seinna á ævinni ber auðvitað ýmis vandamál á góma. Ung- lingsstúlkur koma auðvitað til mæðra sinna, er þær byrja að hafa tíðir. Það, sem hér hefur verið drep- ið á, miðast við að draga sem mest úr því hugarangri, sem börnum hættir svo til í sam- bandi við kynlífið. Spurningum barnanna á að svara hreinskiln- islega. Ef sérhverri er svarað, um leið og hana ber á góma — svarað' stutt og laggott — öðl- ast barnið smám saman rétta mynd af æxlunarstarfinu. Það verður aldrei til að valda skelf- ingu og misskilningi. Æxlunar- starfsemin verður í áugum þess eðlileg lífshræring — eins og náttúran ætlast til. ENDIR 14 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.